Geðorð númer 2 (Að hlúa að einhverjum sem mér þykir vænt um)
Þeir sem mér þykir vant um eru fjölskyldan mín og vinir. Ég vildi að ég væri duglegri að tala við fjölskylduna já og vini mína er ekki búin að vera dugleg við það. Mér finnst það besta sem er til að fá myndir og sögur um hvað barnabarnið er að gera, en hann er tveggja ára og mér þykir óendanlega vænt um hann og börnin mín fjögur. Mér þykir gaman að vinna í höndunum prjóna og sauma búa til eyrnalokka og allskonar skart mér þykir gaman að föndra og mjög vænt um það sem ég geri ef það er ekki nógu gott það er bara að rekja upp og gera nítt. Mig langar mikið til að hlúa að tengdadóttir minni og pabba í veikindum þeirra.