Skilaverkefni 6 "Kvíði og ótti" (5%)
Skoðaðu heimasíðuna sem gefin er upp í kennsluefni vikunnar. Taktu síðan saman 2-3 bls samantekt með 12. pt letri (einu og hálfu línubili) með eigin orðum þar sem eftirfarandi þættir þurfa að koma fram
Líffræði kvíða: skoða líffræðilega þætti sem spila inn í kvíða, svo sem taugaboðefni og heilasvæði.
Áföll og kvíði: hvernig áfallasaga (minningar) getur haft áhrif á þróun kvíða og kvíðaraskana.
Varnarhættir og varnarviðbrögð: skilgreina hvernig varnarhættir virka sem viðbrögð við kvíða og hvernig þeir geta bæði verið hjálplegir og hindrandi.
Munurinn á kvíða og kvíðaröskunum: greina á milli eðlilegs kvíða og þegar kvíði verður að kvíðaröskun.
Hvenær á að leita sér hjálpar: viðmið um það hvenær kvíði fer yfir ákveðin mörk og hvernig best er að bregðast við.
Greining og meðferð: yfirlit yfir helstu greiningaraðferðir og meðferðarúrræði sem eru í boði fyrir kvíðaraskanir (sjá sérstaklega mælitæki á síðunni, greiningarkerfi og meðferðir).
Heildarstigafjöldi: 0-100 stig
1. Gæði efnis (0-30 stig) -tengingar við efnið (0-15 stig)
Flæði og gæði texta (0-15 stig)
2. Innihald svara (0-40 stig)
Skilningur á efni (0-20 stig)
Ítarlegt (0-20 stig)
3. Rökstuðningur og tilvísanir (0-20 stig)
Rökstudd svör (0-20 stig)
4. Málfar og uppbygging (0-10 stig)
Rétt málfar og skýr framsetning (0-10 stig)