Sæl Ásta Björk Arnardóttir heiti ég. Ég verð 53 ára í október og er á Höfn í Hornafirði, hef mikinn áhuga á dýrum, fólki og að ferðast. Ég er búin að vera að starfa í umönnun aldraða og er núna að vinna í Ekru dagdvöl aldraðra á Höfn í 4 ár, átti dreng sem var greindur ofvirkur misþroska og fl. Var að aðstoða mömmu mína sem var með M.S. ég var með krakka með einhverfu í sumar dvöl, ég á líka frændur með einhverfu. Ég á þrjá stráka, eina stelpu og eitt barna barn, á heimilinu eru ég, dóttir mín, yngsti sonur minn og tveir hundar, tveir kettir, sautján hænur (íslenskar, silki, kínverskar og kornhænur).
Ég valdi þennan áfanga vegna þess að ég er að taka þriðja stigi félagsliða og það er gaman að læra eitthvað nýtt. Veit ekki hvað er að vænta en vonandi eitthvað skemmtilegt. Mér kvíðir fyrir skriflegum verkefnum vegna lesblindu og hvað ég er léleg í stafsetningu.
Mínir hæfileikar eru umburðalindi. Lífs mottó mitt er „komdu fram við alla eins og þú vil láta koma fram við þig“.
Kveðja Ásta Björk.