Skilgreining Mental Health Europe (MHE) - Evrópsku hagsmunasamtökin um geðheilsu
Skilyrði fyrir áfangalokum
Samkvæmt evrópsku hagsmunasamtökunum um geðheilsu, Mental Health Europe (MHE), er ekki hægt að finna eina algilda skilgreiningu á geðheilbrigði.
Samtökin líta svo á að afmörkun hugtaksins „geðheilbrigði” sé breytileg eftir ólíkum menningarlegum þáttum, fræðilegum viðhorfum og félagslegum aðstæðum víðsvegar um heiminn. Samanburðarrannsóknir milli ólíkra menningarheima sýna að greiningar og skilgreiningar á geðröskunum og geðheilsu eru ekki sambærilegar milli landa.
Því telur MHE að skilgreina eigi geðheilbrigði og geðröskun sem ákveðna punkta á rófi (eða skala). Til þess þarf að skoða þessi hugtök með þessum margvíslegu menningarlegu, fræðilegu og félagslegu þáttum í huga.
Smelltu á Skilgreining Mental Health Europe (MHE) - Evrópsku hagsmunasamtökin um geðheilsu slóðina til að opna vefinn.