Ætla að starta þessari umræðu og segja ykkur stuttlega frá mér, hvaðan ég kem og hverjar eru væntingar mínar til áfangans.
Ég heiti Sigríður Ásta Hauksdóttir, er 45 ára og bý á Akureyri. Fjölskyldan mín er strákarnir mínir tveir og tengdadóttir mín, sambýlismaður minn og börnin hans tvö. "Börnin" eru öll orðin fullorðin og það eru forréttindi að fá að vera þátttakandi í þeirra lífi, þau eru ólík en yndisleg hver á sinn hátt og auðvitað eins og í öllum fjölskyldum er ekki alltaf endilega logn og blíða!
Ég er kennari, náms- og starfsráðgjafi og fjölskyldufræðingur. Ég vinn bæði sjálfstætt og eins inn í geðheilbrigðis- og menntakerfinu.
Þennan áfanga er ég að kenna í fyrsta skipti í VMA en hef kennt nemendum í SÍMEY, á framhaldsskóla - og grunnskólastigi ásamt því að hafa prófað kennslu á háskólastigi. Á haustönn kenndi ég áfangann Fjölskyldan og sálgæsla í VMA, og einhver af ykkur voruð með mér þar. Á þessari önn kenni ég líka áfanga í geðsálfræði í Menntaskólanum á Tröllaskaga.
Mínar væntingar til áfangans eru þær að ná góðri samvinnu með mínum nemendum og geta miðlað til þeirra þekkingu. Þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég kenni þennan áfanga og hann er kenndur í VMA er hann í vinnslu meðan á kennslu stendur. Það er bæði spennandi og krefjandi.
Mínir ofurhæfileikar eru bjartsýni og þrautseigja.
Lífsmóttó: "Þeir tveir staðir sem þú þarft að halda hreinum, eru hausinn og hjartað!"
kærar kveðjur! Sigga Ásta