Geðorð fjögur er lærðu af mistökum þínum og er mjög mikilvægt og þroskandi. Ég hef gert mörg mistök og er þakklát að hafa lært af þeim og það gefur manni gleði að þroskast og horfa í augun við vondar tilfinnigar sem fylgja þess oft að gera mistök. Ég valdi grein við hana Hörpu magnúsdóttur, hún lærði af mistökum sínum að lifa í óöryggi og ótta og breytti lífi sínu. Hún segir að hún hafi lært að ýta ótta og óöryggi til hliðar því lífið er of stutt til finna fyrir vondum tilfinningum og lifa fyrir lítið, ef maður á sér drauma á maður að láta á þá reyna segir hún sem ég svo sannarlega tek undir.
Hér er greininn:
https://www.mbl.is/frettir/burdargrein/2023/12/17/mikilvaegast_ad_yta_otta_og_ooryggi_til_hlidar/