Þessi frétt fjallar um hvernig geðheilbrigði barna og ungmanna hefur farið versnandi síðustu ára þar sem þau einangrast rosalega mikið og aðal ástæðan er tækjanotkun og samfélagsmiðlar. Það er rosalega auðvelt að tala bara við annað fólk í gegnum netið eða leiki en ekki í raunveruleikanum en raunin er að þetta er að eyðileggja eðlileg félagsleg samskipti og innilokar krakka rosalega mikið sem veldur oft miklum kvíða. Það er talað mikið um skáta og hvað það hefur góð áhrif á ungmenni. Þau læra helling þar og þetta er mikilvæg starfsemi.
Ég er mjög sammála þessu og ég held því miður að það sé rosaelga algengt í dag að börn fái mun meiri skjátíma en þau eiga að hafa og oft er það svo þau séu þæg og stilt og foreldrar þurfi ekki að hugsa eins mikið um þau og sinna þá öðru á meðan. Ég tel starfsemi skátana mjög mikilvæg þó ég hafi ekki reynsluna sjálf en þetta kennir krökkum bara svo mikið um náttúruna, myndar allskonar vinatengsl, hvetur þau til að gera góða hluti, bætir leiðtogahæfni og svo gerir náttúran ein og sér helling fyrir þau. Að vera úti í náttúrunni kemur einstakling í núið og minnkar alla streitu, þú þreytist á eðlilegan hátt og kemur í veg fyrir þunglyndi. Þetta hefur verið marg sannað. Ég er mjög sammála því að útivera fyrir börn er lykilatriði fyrir vellíðan og til að leysa út orku sem myndi kannski ekki ná að leysast á góðan hátt annars. Hreyfing er mikilvæg og við sem foreldrar þurfum að passa að börnin siti bara ekki inni í ipadinum og horfi allan daginn á youtube.