Umræða vika 3 - G vitamín (0,833%)

vika 3

vika 3

Napisane przez: Jóna María Káradóttir ()
Liczba odpowiedzi: 2

Prófaðu eitthvað nýtt.
Ég hef mikla reynslu á prófa eitthvað nýtt. Ég skora reglulega á sjálfan mig, því það er mjög hollt fyrir alla. Ég hef gaman af því að prófa eitthvað nýtt og testa mig sem persónu. Ég hef alls ekki alltaf verið þannig. Ég hef lært helling nýtt um mig sjálfa, þroskast og dafnað bara við það eitt að skora á mig og prófa eitthvað nýtt. Það er afar mikilvægt að fara inní nýjar aðstæður og ekki vera bara í sínum vítahring. Þar er erfitt að dafna og þroskast.

Fagnaðu hækkandi sól.
Ég finn mikin mun andlega á mér eftir að það byrjaði að birta til fyrr á morgnana en ekki upp úr hádegi. Sólin hefur mikil áhrif á líðan okkar og það er líka hægt að segja að hún geti gefið okkur orku. Ég finn meiri gleði að fara út í birtu. Ég hef sérstaklega tekið eftir því þessa vikuna sem leið að birtan hefur gefur mér meiri orku. Ég er ekkert endilega fyrir hita svo ég mjög ánægð á Íslandi en það mætti auðvitað vera meiri birta hér yfir veturinn. Sólinn hefur áhrifin á allt samfélagið og fólk er meira úti og miku meira líf á götum bæjarins.