Rannsóknarskýrsla 1
Rannsóknarskýrsla um þunglyndi eða kvíða
Verkefnið gildir 10% af lokaeinkunn í áfanganum.
Leiðbeiningar
Heimildaleit: Byrjaðu á að leita að áreiðanlegum heimildum sem fjalla um viðfangsefnið. Áhersla skal vera á fræðilegar greinar, rannsóknir, bækur og viðurkenndar vefsíður. Notaðu bókasafn, gagnagrunna og aðrar þekktar upplýsingaheimildir.
Skýrslu-uppbygging:
Inngangur: Lýstu því hvað þunglyndi eða kvíði er og af hverju það er mikilvægt að skoða þá geðrænu áskorun.
Orsakir þunglyndis eða kvíða: Fjallaðu um þekktar orsakir þunglyndis eða kvíða, bæði líffræðilegar, sálfræðilegar og félagslegar.
Afleiðingar: Lýstu afleiðingum þunglyndis eða kvíða á einstaklinginn og samfélagið.
Meðferðir: Greindu frá mismunandi meðferðarúrræðum sem eru í boði fyrir þunglyndi eða kvíða (getur fallið saman ss. HAM).
Umræða: Þar sem þú setur þitt eigið sjónarmið fram, tengir viðfangsefnið við það sem þú hefur lært í áfanganum og leggur mat á mikilvægi þess sem þú vilt koma á framfæri með skýrslunni þinni.
Heimildaskrá: Allar heimildir sem þú notar í skýrslunni þurfa að vera rétt tilgreindar í heimildaskrá. Athugaðu að nota APA-tilvísunarstíl.
Heimildatilvísun: Mikilvægt er að þú tilvísir rétt í þær heimildir sem þú notar , bæði í texta og í heimildaskrá.
Lengd: Skýrslan skal vera í kringum 2000 orð að lengd, 12pt. letri og einu og hálfu línubili.
Mat:
Innihald og dýpt: 50%
Fræðileg nákvæmni og heimildanotkun: 20%
Skipulag og framsetning: 20%
Stíl og málnotkun: 10%