Skilaverkefni 4 - Dagur í lífi (5%)
Horfðu á þessa tvo þætti úr þáttaröðinni "Dagur í lífi" sem er íslensk þáttaröð í átta hlutum um líf fólks sem býr við skerta starfsgetu og/eða líkamlega fötlun af ýmsum toga. Í þáttunum fylgjumst við með fólki á öllum aldri, víða um land, í ýmsum störfum og með ólíka fötlun og fjölskyldugerð.
Við kynnumst Unni Hrefnu Jóhannsdóttur sem glímir við geðhvörf og flogaveiki og Öldu Lilju Hrannardóttur en hán segir frá eigin reynslu af geðröskunum og list sinni.
Þú velur 10 áhugaverð atriði úr hvoru viðtali fyrir sig viðtalinu sem tengist geðheilbrigði og þátttöku í samfélaginu. Taktu sérstaklega eftir seiglu og styrkleikum hjá viðmælendum.
Samantektin úr hvoru viðtali fyrir sig:
Minnst blaðsíða á lengd en ekki meira en tvær blaðsíður
Í 12 punkta letri og með 1.5 línubili
Mikilvægt er að textinn frá þér sé auðlesinn og skiljanlegur
Segðu frá með þínum eigin orðum byggðum á viðtalinu
Endaðu samantektina/útdráttinn á að minnsta kosti tveimur setningum frá þér þar sem þú segir þína skoðun
Þú getur skilað textanum beint í skilahólfið eða skilað opnum hlekk. Mundu bara að læstur hlekkur gefur ekkert í einkunn.
Námsmat:
10 stig - kemur með 10 áhugaverð atriði úr hvoru viðtali fyrir sig
40 stig - nemandi tjáir sig skipulega og gagnrýnið um innihald viðtalsins
20 stig - Innihaldið gott og ykkar vangaveltur koma fram
10 stig - Lengd texta viðunandi
10 stig - Framsetning og orðalag gott
5 stig - Uppsetning texta snyrtileg og rétt
5 stig - Metnaðarfullt og vel unnið