الخطوط العريضة للقسم

  • Þjóðfræði við Háskóla Íslands - Þekkir þú ástarbragð? #þjóðfræði # þjóðfræðimoli #þjóðtrú | Facebook  Þjóðfræði við Háskóla Íslands - Við mælum með því að fara heldur eftir  fyrirmælum Landlæknis og Almannavarna en að láta reyna á þessi gömlu  lækningaráð. 🩺🩸Heimild: Jónas Jónasson, Íslenzkir þjóðhættir (1934).  #þjóðfræði #

    Viðfangsefni vikunnar: Efnismenning

    Í þessari viku byrjum við að skoða efnismenningu. Þið lesið kaflann: Ég og efnisheimurinn, bls. 22-30 í kennslubókinni Þjóðfræði hvað? Aðaláhersla er lögð á þrjá þætti efnismenningar, líkama, fatnað og heimili. 

    Verkefni vikunnar:

    • Hugleiðing úr Lúsaskiptum
    • Alþýðubókin og hreinlæti

    Bæði verkefni opnast kl. 8:00 mánudaginn 11. mars og loka á miðnætti mánudaginn 18. mars.



    • Horfðu á meðfylgjandi myndband með leiðbeiningum fyrir útlendinga um þrif á sundstöðum. Hvað segir það okkur um viðhorf Íslendinga til nektar og hreinlætis í nútímanum? 

    • Grein eftir Hrefnu Díönu Viðarsdóttur. Birtist áður á Kreddum, vefriti um þjóðfræði. 

    • Lesið greinina  „Lúsaskipti. Um fortíðarhyggju og skítugar nærbuxur“ eftir Hrefnu Díönu Viðarsdóttur. Skrifið svo 200-300 orða hugleiðingu þar sem þið berið saman efni greinarinnar við umfjöllunina um hreinlæti á bls. 24 í kennslubókinni „Þjóðfræði hvað?“ 

      Þið getið m.a. fjallað um...

      1. kenningu Mary Douglas um óhreinindi.
      2. hvernig borgarastéttin í Svíþjóð ól börn sín upp við hreinlæti og þjálfaði þau í því.
      3. hvernig hugmyndir okkar um hreinlæti hafa breyst frá því að hér var sveitasamfélag og af hverju.
      4. hvernig viðhorf til nektar á 19. öld hafa breyst m.v. daginn í dag.
      5. „fátækraþerri“.
      6. keytu og notkun hennar.
      7. af hverju það er skiljanlegt að þrif og þvottar voru ekki efst á verkefnalista fólks á þeim tíma sem greinin fjallar um.

    • Kaflinn Um þrifnað á Íslandi úr Alþýðubókinni eftir Halldór Laxness.  

    • Umræða af vefnum bland.is Skoðaðu þessu umræðu og rifjaðu upp lýsingu Halldórs Laxness um sama efni úr Alþýðubókinni.