18. mars - 24. mars
Section outline
-
Viðfangsefni vikunnar:
Við höldum áfram að fjalla um efnismenningu, kaflinn Ég og efnisheimurinn, bls. 22-31 í Þjóðfræði hvað? Einnig á að lesa greinina Bernskuheimili mitt eftir Ólöfu frá Hlöðum, áhugavert er að bera lýsingu hennar saman við fasteignaauglýsingar nútímans.
Við horfum við á nokkur myndbönd sem fjalla um efnismenningu og menningararf auk þess sem við höldum áfram með umfjöllun um líkamann og lesum greinina Kynfjötrar: Fólk, föt og pólitík og rannsóknina Hárleysi og mótun kyngervis.Verkefni:
- 1.3. Verkefni um húsakost og aðstæður fyrr á tímum
- 3.4. Moodleverkefni um efnismenningu
Bæði verkefni opna kl. 8:00 mánudaginn 18. mars og loka á miðnætti þriðjudaginn 2. apríl. Ath. að verkefni þessarar viku eru opin í tvær vikur vegna páskafrís í næstu viku.
-
Lestu þessa grein eftir Ólöfu frá Hlöðum. Verkefni um húsakost og aðstæður fyrr á tímum byggir að miklu leyti á frásögn Ólafar.
-
Skoðaðu fasteignavefinn og veldu íbúðarhúsnæði af handahófi á Akureyri, í Reykjavík eða þínum heimabæ. Skoðaðu hvað er ólíkt við húsnæði nútímans miðað við húsnæði eins og því er lýst í Alþýðubókinni, Lúsaskiptum, Bernskuheimili mitt og á bls. 29 í Þjóðfræði hvað?
-
Kynnið ykkur bls. 29 í Þjóðfræði hvað? og einnig það sem fram kemur í Alþýðubókinni og Lúsaskiptum um húsakost og aðstæður fyrr á tímum. Spurningarnar í þessu verkefni eru þó einkum úr Bernskuheimili mitt.
-
-
Grein eftir Fríðu Björk Ólafsdóttur af vefritinu Kreddum, vefriti um þjóðfræði.
-
Fyrirlestur Hildar Friðriksdóttur á Þjóðarspegli 2014 um rannsókn sem hún gerði með Andreu Hjálmsdóttur á kynfærarakstri kvenna.
-
Það hefur færst í aukana að karlar safni skeggi. Er hárvöxtur karlmannlegur? Eru sköllóttir karlmenn óeftirsóknarverðir?
-
-
Ath. að efni um táknfræði og sviðsetningu birtist í vikunni eftir páska, 1.-7. apríl.