7. verkefni
Magntaka og kostnaðarreikningur:
Magntakið öll rafkerfi á neðri og efri hæð, þ.e.s. bílaverkstæði og matsölustað, sem eru: Lagnaleiðir, lágspennukerfi, fjarskiptakerfi, brunaviðvörunarkerfi.
Notið töflureikni Excel eða sambærilegt við magntökuna og kostnaðar útreikninginn.
Verkefnaskil:
Skilið verkefninu samkvæmt dagsetningu hér í moodle. Það er einungis hægt að skila verkefni einu sinni og aðeins ein heildareinkunn kemur fyrir verkefnið. Ekki er hægt að skila verkefni eftir uppgefinn skiladag.
Það sem þarf að skila:
Excel skjal, eða sambærilegt skjal í töflureikni sem sýni magntöku sundurliðaða sambærilegt því er kemur fram í excel skjölum sem fylgja með verkefninu.
Öllum endurbættum teikningum af öllum rafkefrum sem eru: Lagnaleiðir, lágspennukerfi, fjarskiptakerfi, brunaviðvörunarkerfi. Skila á teikningum hér í moodle á PDF formi.