Section outline
-
Þá eruð það síðustu lokametrarnir hjá okkur í þessum áfanga. Ég hef fengið gagnlega endurgjöf varðandi verkefni, vægi og hugmyndir frá ykkur. Hjartans þakkir fyrir það. Í framhaldinu hef ég gert breytingar á námsmati (sjá 4-5 hér að neðan), ef þið gerið athugasemdir vinsamlegast heyrið í mér sem fyrst!
- Nú er opið fyrir verkefnaskil (dagbækur, umræður, skilaverkefni) aftur í tímann svo þið hafið tækifæri til að skila inn ef þið náðuð ekki á sínum tíma, allra síðasti sjens á að skila inn er 13. maí (síðasti kennsludagur annarinnar skv. skóladagatali)
- Þið verðið að skila inn 10 sjálfsmatsdagbókum/vikulegum dagbókum til að ljúka áfanganum (gilda 10%)
- Þið verðið að mæta í tvö viðtöl (seinna viðtalið er núna 6-12 maí) - saman gilda þau 15%
- Skýrslur, sem áttu að vera tvær (þið eruð búnar að skila einni þar sem þið fjölluðuð um annahvort kvíða eða þunglyndi) verður núna bara ein. Vægið í þessum námsþætti fer því úr 20% niður í 10%.
- Eigindlega rannsóknin sem er með vægi 15%, fer í vægi 20%.
- Vægið á skilaverkefnum ykkar hækkar úr 30% í 35% (dreifi þessum auka 5% niður á skilaverkefnin ykkar - þessi sex sem þið hafið skilað nú þegar).
Lokanámsmatið verður því svona:
Sjálfmsatdagbækur 10%
Umræður 10%
Rannsóknraskýrsla 10 %
Eigindleg rannsókn 20%
Skilaverkefni 35%
Viðtöl 15 %