Section outline
-
Þá erum við að hefja viku 2 í þessum áfanga. Mig langar til að hrósa ykkur öllum fyrir frábæra byrjun og ef eitthvað kemur upp eða er óskýrt ekki hika við hafa samband við mig hér í skilaboðum á moodle.
Leiksýningin "Vertu úlfur", sem frumsýnd var í janúar 2021 og lauk sýningum á vormánuðum 2023. Árið 2021 var hún verðlaunuð með sjö Grímuverðlaunum, þar á meðal fyrir sýningu ársins, leikrit ársins, leikstjóra ársins, aðalleikara ársins, leikmynd ársins, lýsingu ársins og hljóðmynd ársins. Titillagið að sýningunni hlaut ennfremur viðurkenningu á Íslensku tónlistarverðlaununum í opnum flokki árið 2022.
Tónlistin í sýningunni var samið af fjórum tónlistarmönnum. Valgeir Sigurðsson er höfundur tónlistarinnar, en Emilíana Torrini, í samstarfi við Markétu Irglová, og Prins Póló lögðu einnig til lög, sem eru innblásin af viðfangsefni sýningarinnar. Hvert lag endurspeglar mismunandi hliðar geðhvarfa; verk Emilíönu dregur fram dýpri og viðkvæmari hliðar, á meðan Prins Póló sýnir fram á oflætið.
Titillagið " Vertu úlfur"
Kötturinn vill inn - lag Prins Póló
Viðfangsefni vikunnar er að halda áfram að skoða geðheilsu/geðheilbrigði (sjá kennsluefni vikunnar) ásamt því að gera þrjú verkefni.
Verkefni vikunnar eru þrjú (vikan gildir 6,83%)
- Umræða 2 - (0,83 %)
- Vikuleg dagbók - vika 2 (1%)
- Skilaverkefni 1- "Geðheilsan- reynsla af geðrænum áskorunum" (5 %)
-
Upptaka af einleiknum Vertu úlfur sem var sýnd fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu 2021-2023. Sýnt á ruv.
Leiksýningin er byggð á sjálfsævisögulegri frásögn Héðins Unnsteinssonar. Aðalhlutverk: Björn Thors. Leikstjórn: Unnur Ösp Stefánsdóttir. -
Verkefni vikunnar
-
-
Opened: Monday, 29 January 2024, 8:00 AM