Uppbygging kynningar
Kynning á lokaverkefni
Kynningar verða á lokaverkefnisdegi, þriðjudeginum 5. desember.
Kynning á lokaverkefni gildir 20% af lokaeinkunn. ATH! Til þess að ná áfanganum þarf að kynna verkefnið.
Með þessu eruð þið að kynna verkefnið ykkar sem þið hafið lagt mikið í og því má líta á kynningardaginn sem uppskeruhátíð áfangans.
Kynningar verða í málstofuformi, þ.e. ykkur verður skipt niður í hópa. Ykkur er skylt að mæta á ykkar málstofu en er frjálst að mæta líka á aðrar ef eitthvert viðfangsefni vekur áhuga ykkar. Hver kynning á ekki að taka meira en 10 mínútur, auk þess sem þið skuluð gera ráð fyrir spurningum og umræðum. Heildartími gæti orðið 15. mín. Í kynningunni stiklið þið á stóru um að hverju þið komust í verkefninu ykkar og segið frá niðurstöðum.
Kynningin er metin út frá þessum þáttum:
Kynning (50%)
Nemandi kynnir sjálfan sig og verkefnið.
Atriði sem skipta máli fyrir einkunn:
Framkoma og uppsetning
Augnsamband, les ekki beint af blaði
Glærur góðar (málfar, stafsetning, myndræn framsetning o.þ.h.)
Kynning vel æfð
Efnistök (50%)
Uppbygging á fyrirlestri (sambærileg bygging og kaflaskipting verkefnis)
Ef ritgerð = fjallið um inngang, meginmál, lokaorð
Ef rannsókn = fjallið um inngang, aðferð, niðurstöður, umræðu
Nokkrir mikilvægir punktar til að hafa í huga við gerð kynningar:
Útskýra viðfangefnið vel - svo áheyrendur viti hvað þið eruð að tala um!
Ekki fara í öll smáatriðin - bara tími fyrir aðalatriðin.
Hafa glærurnar svolítið flottar og fínar - ekki of mikill texti eða skakkar og teygðar myndir.
Taka alltaf saman helstu niðurstöður í lokin.
Ekki er þörf á heimildaskrá þar sem hún er í verkefninu sjálfu og ,ykkur er ekki ætlað að bæta nýjum heimildum við kynningu. Ekkert nýtt á að koma fram í kynningunni, sem ekki hefur komið fram í verkefninu sjálfu.
Vandið vel til verka, verið búin að æfa kynninguna vel og taka tíma á flutningi. Góður undirbúningur skilar sér í góðri kynningu, verið því vel undirbúin og tilbúin þegar að kemur að kynningardeginum.