Verkefni úr sögunni Rautt og gult.
Krav for gennemførelse
Aflever en besvarelse
Åbnet: mandag den 15. januar 2024, 08:00
Forfalder: fredag den 19. januar 2024, 23:59
Verkefni úr sögunni Rautt og gult sem er á að finna í les- og vinnuheftinu ykkar.
Mundu að merkja verkefnið nafni, skóla og áfanganúmeri.
Svarið eftirfarandi spurningum:
- Hvert er sjónarhornið í sögunni?
- Fjallaðu um tímann í sögunni eins og hægt er. Hver er innri tími sögunnar og hvað gefur hann til kynna? Hvað með ytri tímann?
- Gerðu grein fyrir persónulýsingum í sögunni. Er stelpunum lýst beint eða óbeint? Hvernig eru samskiptin milli stelpnanna?
- Hvernig er Kínverjanum lýst? En blóðuga manninum? Er þeim lýst beint eða óbeint? Með hvorum þeirra hefur þú samúð? Af hverju hefur þú samúð með öðrum fremur en hinum? Hvernig nær höfundur þeirri samúð fram?
- Lýstu byggingu sögunnar. Hvar er kynningu lokið? Hver er kjarni átakanna (flækjunnar)? Hvar er ris sögunnar? Hver er lausnin?