7. verkefni
Verkefnið.
Verkefnið felst í því að hanna og teikna raforkudreifikerfi í eyjuna Lundey. Í eyjunni er, matsölustaður, bílaverkstæði, fiskvinnsla, verslun, skólar, sundlaug,íbúðarhverfi og fleira. Eyjan sem hanna á rafdreifikerfi í er samkv. meðfylgjandi teikningu. Verkefninu fylgir einnig grunnteikning af eyjunni á tölvutæku formi.
Hönnunarferli.
Ákveða þarf legu strengja og götuskápa.
Notið tölvugrunn, staðsetjið götuskápa og strengi.
Álag reiknað og valdir strengir.
Nota skal staðlaðar stærðir strengja. Hér þarf að leita upplýsinga hjá söluaðilum rafbúnaðar. Geta skal um tegund strengja. Búið er að ákveða staðsetningu spennistöðvar fyrir hverfið og einnig stærð og gerð spennis. Ekki er um aðrar byggingar að ræða sem fæðast frá spenni, í spennistöð. Reikna þarf út aflnotkun fyrir hverfið. Hér þarf að leita upplýsingar um aflþörf einstakra bygginga.
Skammhlaup athugað, valinn varbúnaður og götuskápar.
Skammhlaupsstraumur reiknaður í strengjum, varbúnaður valinn og götuskápar valdir. Nota skal staðlaðar stærðir varbúnaðar og götuskápa. Hér þarf að leita upplýsinga hjá söluaðilum rafbúnaðar eða rafveitum. Geta skal um tegund búnaðar. Fylgja þarf með verkefninu tækniupplýsingar frá framleiðanda búnaðar. Eftilvill þarf að endurskoða fyrri hönnun, það er að segja stærð strengja miðað við reiknað álag á strengi.
Spennufall reiknað.
Reikna þarf út spennu hjá hverjum einstökum notenda, miðað við samtímaálag. Eftilvill þarf að endurskoða fyrri hönnun, það er að segja stæð strengja og varbúnað miðað við álags og skammhlaupsstrauma. Spennufall má ekki vera meira en reglur gera ráð fyrir.
5. Frágangur teikninga.
Ganga þarf frá endanlegum teikningu. Allar teikningar teiknist í autoCAD eða sambærilegu teikniforriti. Koma þarf fram á teikningum, lega strengja, götuskápar, skammhlaupsstraumar í einstökum hluta kerfisins, spenna í spennistöð og spenna hjá hverjum einstökum notenda.
Verkefnaskil. Skila á verkefninu á "pdf" formi og samkv. dagsetningu, í moodle.
Einkunn:
Frágangur,
stíll og skipulag verkefnis.( Einkunn 0 - 20% )
Er verkefnið vel upp sett ?
Er frágangur og hönnun teikninga vandaður ?
Er auðvelt að skilja útreikninga ?
Hönnun.
( Einkunn 0 – 60% )
Eru teikningar réttar ?
Fylgja með tækni upplýsingar um búnað ?
Eru tækniupplýsingar góðar?
Hafa allir hlutar hönnunarferlis verið gerðir ?
Eru útreikningar réttir ?
Fagleg vinnubrögð.
( Einkunn 0 – 20% )
Eru allar upplýsingar rekjanlegar, er vitnað í heimildir ?
Eru vinnubrögð og frágangur verkefnis trúverðugur ?
- 1 مارس 2022، 11:07 AM
- 1 مارس 2022، 11:07 AM