Section outline

    • Opened: Monday, 16 March 2026, 7:00 AM
      Closed: Monday, 23 March 2026, 11:59 PM
      • Undirbúningur fyrir próf

          

        1. kafli: Þar legg ég mesta áherslu á samvægi bls. 18 og svo hin ýmsu jafnvægi sem koma þar á eftir. Þ.e vökvajafnvægi, varmajafnvægi, sýru og basajafnvægi (ekki leggjast of mikið í þann kafla, hann er dáltið flókinn) og svo blóðsykurjafnvægið. Þetta eru þau jafnvægi sem þið skuluð skoða.

        2. kafli: Skoðið vel orsakir frumulöskunar bls 28 - 30. Orsakir frumulöskunar og viðbrögð frumna við álagi eru mikilvægir þættir. Það eru þættirnir á bls. 30 til 32 með feitletruðu orðunum. Þekkja drep og ensímin sem mælast í blóðvökvanum í drepi bls. 33. Bls: 34-35 eru bólguviðbrögð það skuluð þið þekkja ásamt atburðarrás bólguviðbragða sem og almenn og staðbundin bólguviðbrögð. Bls. 36- 37 kunna ramman og svo skuluð þið skoða glósur um ónæmisviðbrögðin því sumt er svolítið flókið hjá honum í þessum kafla. Bls. 38 – 41, leggið áherslu á líkamsfrumur - er skipt í þrjá megingerðir eftir hæfileikum þeirra til að endurnýja sig. Skoðið það vel.

        3. kafli: Lesið vel um mengun bls. 43 -46. Skoðið svo töflu bls. 47 um efni í sígarettureyk. Lesið vel bls. 51 -54 að raflost. Satt að segja legg ég ekki mikla áherslu bls. 55 - 61. Það kemur fram í svo mörgum öðrum áföngum. En svo legg ég mikla áherslu á restina af kaflanum, það er 62 - 68.

        4. kafli: Hann skulu þið lesa vel nema bls. 84 og 85. Tafla bls. 81 er skemmtileg og gaman að spyrja úr henni, þ.e munur á hegðun góðkynja og illkynja æxla.

        5. kafli: Hann er stuttur og lesa hann allan.

        6. kafli: Hann er líka tekinn allur og er býsna auðskilinn í bókinni.

        7. kafli: Hann tökum við allan.

         

        Gangi ykkur súper vel 😊

         

        Bestu kveðjur, Anný

  • Námsefni: 1. kafli, í kennslubókinni Sjúkdómar í mönnum (sbr. námsáætlun) bls.7-17 að samvægi.
    Einnig er gott fyrir ykkur að rifja upp um frumuna og starfsemi hennar. Það er hægt að gera það á verldarvefnum eða í LOL Bókinni (Salómon o. fl. 1995. Líffæra-og lífeðlisfræði. Regína Stefnisdóttir (þýð.) 3. kafli , frumur og vefir) svo dæmi séu nefnd.

  • 1. kafli, í kennslubókinni Sjúkdómar í mönnum (sbr. námsáætlun) bls.18-26, byrja á samvægi og ljúka við kaflann.  Glærur í 1. viku eru fyrir allan fyrsta kafla.

    Stutt verkefni.

    • Opened: Monday, 2 February 2026, 7:58 AM
      Closed: Sunday, 8 February 2026, 11:59 PM
  • Námsefni: 2. kafli, í kennslubókinni Sjúkdómar í mönnum (sbr.námsáætlun) bls. 27-34, upphaf kaflans og að bólguviðbrögðum. Glærur frá Ingu fylgja. 

  • Námsefni: 2. kafli, í kennslubókinni Sjúkdómar í mönnum (sbr. námsáætlun) bls.34-41, byrja á bólguviðbrögðum og ljúka við kaflann. Þetta efni er frekar erfitt og ég vil benda ykkur á að lesa jafnframt um varnarkerfi og ónæmi á netinu eða ef þið eigið Líffæra-og lífeðlisfræðinni - LOL-bókina.(í þýð Regínu Stefnisd.) síðara bindi, kafla 14.

  • Nú er komið að 5. verkefninu. Lesefnið er 3. kafli í kennslubókinni, bls. 43- 55 að næringarskorti.

    Ég bendi ykkur á að skoða vel rauðu ramana á bls. 44, 46 og 47 (efnissameindir í sígarettureyk)  sem og töflur bls. 51 og 55. Rauðu ramana á bls. 49 og 52 getið þið lesið lauslega.

    • Opened: Monday, 23 February 2026, 7:00 AM
      Closed: Sunday, 1 March 2026, 11:58 PM
  • Höldum áfram í 3. kafla. Byrja á næringarskorti bls. 55 og ljúka við kaflann, auk þess meðfylgjandi áherslupunktar á glærum. Svo er náttúrulega mikið af góðu efni á netinu.

  • Lesefni: 4. kafli í kennslubókinni bls. 71-83, en hann fjallar um erfðaveilur og æxlisvöxt. Mörgum finnst hann erfiður á köflum og það er alveg hægt að taka undir það :)
    Við sleppum alveg bls. 84 og 85. Lesið lauslega bls. 86 - 88. Í næstu viku byrjum við svo á bls. 89. 
    Kaflinn byrjar á stuttu yfirliti um erfðfræði og síðan er fjallað um góðkynja og illkynja æxlivöxt.
    Ef þið eigið Líffæra og lífeðlisfræði eftri Reginu er mjög gott fyrir ykkur að lesa kafla 22 í henni.

    Töflurnar á bls. 80 og 81 eru mjög mikilvægar, þið skuluð skoða þær mjög vel.

    Verkefni þessa vikuna er frekar langt og jafnvel svolítið þungt enda er þetta er svolítið erfiður kafli.
    En þið gefist ekki upp, erum komin langt og þið hafið staðið ykkur mjög vel :)

    • Opened: Monday, 9 March 2026, 8:00 AM
      Closed: Sunday, 15 March 2026, 11:59 PM

    • Samkvæmt námsáætlun átti annarprófið að vera í síðustu viku, en það var svo þungt verkefnið að ég ákvað að setja það inn núna. Það er þannig að þið hafið 2 tíma til að leysa það en getið tekið það hvenær sem ykkur hentar í vikunni. Ekki láta ykkur bregða yfir fjölda spurninga, helmingurinn er bara krossar. Annarpróf finnið þið hérna ofar.

      Lesefni : 1. Áfram 4. kafli í kennslubókinni byrja á bls. 83 orsakir æxlisvaxtar og ljúka við kaflann, en sleppa punktbreytingum bls. 84-85. Lesa bls. 83 eftir Æxlis og onkogen, bls. 86, 87 og 88 lauslega.

      Þetta gengur mjög vel hjá ykkur og nú er erfiðast kaflinn í bókinni að verða búinn, farið að styttast í endamarkið.

      Hluti af kröfum í áfanganum er að þið kunnið latínuorð og það er orðalisti hérna ofar í áfanganum. Þið þurfið ekki að kunna að skrifa orðin ég spyr úr þeim í krossum og tengingum.

      Verkefni  þessa vikuna er að svara spurningum 9- 17 í bókinni á bls. 96 en sleppa spurningu 11.

    • Opened: Monday, 16 March 2026, 7:00 AM
      Closed: Monday, 23 March 2026, 11:58 PM
  •  Nú er komið að 9. verkefninu.

    Lesefni :  5. kafli (þekjukerfi)  og byrja á 6. kafla (hreyfikerfi) að Iktsýki bls. 111.

    Stoðefni sem ég vil benda ykkur á er á google.com. Þið getið googlað þessa sjúkdóma sem við erum að fara í (notið erlendu heitin í bókinni) og þá sjáið þið mikið af myndum sem er fróðlegt fyrir ykkur að skoða. Einnig eru síðurnar gigt.is og doktor.is mjög fínar. 

     Það eru þrjú verkefni eftir fyrir utan þetta, styttist mjög í lokamarkið. 

    Þið eigið svo eftir að skrifa stutta heimildarritgerð um einhvern sjúkdóm sem fjallað er um í áfanganum, fáið kynningu á því síðar. 

    Gangi ykkur vel, Anný



    • Opened: Monday, 23 March 2026, 7:00 AM
      Closed: Sunday, 29 March 2026, 11:59 PM
  • Nú eru aðeins eitt verkefni eftir fyrir utan þetta og svo sýnispróf.

    Lesefni : 6. kafli í kennslubókinni byrja á Iktsýki bls. 111 og klára kaflann. Enn og aftur vil ég minna ykkur á veraldarvefinn og það gífurlega mikla magan af góðu efni um sjúkdóma sem er þar eins og t.d. á doktor.is

    Ég vil benda ykkur á að það er komin ritgerðarlýsing efst á síðunni, skoðið endilega og veljið ykkur efni og þá getið þið byrjað í rólegheitum. Skil á ritgerð er 19. apríl. 

    Gangi ykkur vel, Anný



    • Opened: Monday, 30 March 2026, 10:00 AM
      Closed: Sunday, 12 April 2026, 11:58 PM
  • Þá er það 11.  verkefnið og það síðasta í þessum áfanga, fyrir utan heimapróf/sýnispróf og ritgerðina.

    Lesefni :  7. kafli í kennslubók, sjúkdómar í taugakerfi bls. 123 - 138.
    Upphaf kaflans fjallar um sýkingar í heila og heilaáverka. Ég vil benda  ykkur á að lesa vel um einkenni hækkaðs innankúpuþrýstings og auk þess meðfylgjandi efni um mat á stærð og lögun ljósopa. Það er mjög handhæg og fljótleg athugun, sem getur gefið miklar vísbendingar um ástand heila.

    Athugið að það er komin smá texti um aðalatriði fyrir lokapróf undir "Undirbúningur fyrir lokapróf - vor 2026", efst á síðunni.

    Svo er skilakassi á Turnitin efst á síðunni fyrir ritgerðina :) 

    Gangi ykkur vel, mjööög stutt eftir hjá ykkur :)
    Kveðja, Anný

  • Sýnipróf - Heimapróf.  Þið eigið að vinna þetta verkefni á blað skriflega og skila inn myndum af því.
    Góður undirbúningur fyrir lokaprófið. Þetta er gamalt lokapróf frá Ingu og er nokkuð dæmigert hvernig prófið ykkar gæti litið út.
    Þetta er lokaverkefnið í þessum áfanga - þið hafið staðið ykkur vel og það hefur verið mjög ánægjulegt að fylgjast með ykkur :)
     
    Takk fyrir samvinnuna í vetur, gangi ykkur vel :)
    Bestu kveðjur, Anný