Section outline


    • Samkvæmt námsáætlun átti annarprófið að vera í síðustu viku, en það var svo þungt verkefnið að ég ákvað að setja það inn núna. Það er þannig að þið hafið 2 tíma til að leysa það en getið tekið það hvenær sem ykkur hentar í vikunni. Ekki láta ykkur bregða yfir fjölda spurninga, helmingurinn er bara krossar. Annarpróf finnið þið hérna ofar.

      Lesefni : 1. Áfram 4. kafli í kennslubókinni byrja á bls. 83 orsakir æxlisvaxtar og ljúka við kaflann, en sleppa punktbreytingum bls. 84-85. Lesa bls. 83 eftir Æxlis og onkogen, bls. 86, 87 og 88 lauslega.

      Þetta gengur mjög vel hjá ykkur og nú er erfiðast kaflinn í bókinni að verða búinn, farið að styttast í endamarkið.

      Hluti af kröfum í áfanganum er að þið kunnið latínuorð og það er orðalisti hérna ofar í áfanganum. Þið þurfið ekki að kunna að skrifa orðin ég spyr úr þeim í krossum og tengingum.

      Verkefni  þessa vikuna er að svara spurningum 9- 17 í bókinni á bls. 96 en sleppa spurningu 11.

    • Opened: mánudagur, 16. mars 2026, 7:00 AM
      Closed: mánudagur, 23. mars 2026, 11:58 PM