ÍSLE1FL05 - Lestur og tjáning í ræðu og riti
مخطط أسبوعي
-
Velkomin í ÍSLE1FL05
Sæl verið þið og verið velkomin
Við notum þessa Moodle-síðu og setjum inn efni hverrar viku. Flestar vikur eru lesskilningspróf á Moodle sem þið þurfið að leysa. Hverjum texta fylgir hljóðskrá fyrir þau sem vilja nýta sér það. Þið þurfið ekki að kaupa kennslubók, en við notum ýmsa texta sem verða skannaðir hér inn. Upplýsingar um hvaðan textarnir eru fengnir munu fylgja með svo þau ykkar sem viljið hlusta á s.s. frá Hljóðbókasafninu getið nálgast þá.
Fylgist vel með tölvupóstum og hér á Moodle, en umfram allt mætið vel í tíma.
Bestu kveðjur, kennarar.
____________________________________________________________________________________________________________________________
-
5. lesskilningspróf
1. tímapar: 5. lesskilningspróf. Farið yfir verkefni fyrri viku. Nemendur lesa söguna um Bóthildi drottningu og vinna verkefni í Moodle.
2. tímapar: Orðflokkar með áherslu á fallorð, bls. 7-11 í Les- og vinnuhefti.
3. tímapar: Lærum meira um orðflokka með áherslu á fallorð, bls. 12 og 13 í Les- og vinnuhefti.
Nemendur verða að klára heima þau verkefni sem ekki næst að klára í kennslustundum!
- Verkefni úr sögunni Bóthildur drottning.
- Bls. 7-13 í Les- og vinnuhefti.
- 5. lesskilningspróf.