19 February - 25 February
Section outline
-
Munið að smella á vikuna til að opna hana.
Í þessari viku ljúkum við orðflokkaverkefnum og lærum um muninn á talmáli og ritmáli og vinnum orðabókaverkefni í Les- og vinnuhefti. Auk þess byrjum við að vinna að ritunarverkefni þar sem við endurskrifum sögu með breyttu sjónarhorni.
Ath. að á miðvikudag verður miðannarpróf í kennslustund. Munið eftir skriffærum.
1. tímapar:- 7. lesskilningspróf
- Upprifjun fyrir miðannarpróf. Orðflokkar: Sagnorð, forsetningar, samtengingar, nafnháttarmerki, atviksorð (sjá glærur úr fyrri vikum). Verkefni bls. 12-14.
- Miðannarpróf
- Talmál og ritmál, verkefni bls. 19-20 í Les- og vinnuhefti
- Verkefni um breytt sjónarhorn lagt fyrir.
Klára heima þau verkefni sem ekki náðist að vinna í tímum:
- 7. lesskilningspróf
- Bls. 19-20 í Les- og vinnuhefti
-
Hér er textinn fyrir 7. lesskilningsprófið sem að þessu sinni kemur úr bókinni Geimverur. Leitin að lífi í geimnum eftir Sævar Helga Bragason. Kaflinn sem þið lesið heitir Sandkornin á jörðinni. Lesið textann vel áður en þið opnið prófið.
-
Hér er tengill á hljóðskrá fyrir 7. lesskilningsprófið: Sandkornin á jörðinni. Gagnlegt getur reynst að hafa lestextann fyrir framan sig meðan hlustað er.
-
Hér er 7. lesskilningsprófið. Það er úr kaflanum Sandkornin á jörðinni sem finna má í bók Sævars Helga Bragasonar Geimverur. Leitin að lífi í geimnum. Prófið er opið í 60 mínútur og hægt er að fara tvisvar inn í það.