12 فبراير - 18 فبراير
الخطوط العريضة للقسم
-
Munið að smella á vikuna til að opna hana.
Í þessari viku lærum við að gera útdrátt úr texta, um beina og óbeina ræðu, skoðum málfræðina og rifjum upp efni liðinna vikna.
Athugið að við förum í vetrarfrí á fimmtudag og föstudag.
1. tímapar: Útdráttur- 6. lesskilningspróf
- Útdráttur, sjá Les-og vinnuhefti bls. 21 og 22.
- Tímaverkefni útdráttur í Moodle.
2. tímapar: Bein og óbein ræða, setning, málsgrein og efnisgrein- Nemendur lesa um beina ræðu og óbeina ræðu. Í framhaldinu vinna þeir verkefni á Moodle.
- Nemendur rifja upp mun á setningu, málsgrein og efnisgrein og vinna verkefni bls. 15 í Les- og vinnuhefti.
3. tímapar. Vetrarfrí.
Ef nemendur vilja undirbúa sig fyrir miðannarprófið 21. febrúar er ágætt að skoða eftirfarandi:- Málfræði: Yfirflokkarnir þrír, fallorð, sagnorð, smáorð, fallorðaflokkar.
- Bókmenntahugtök: Flokkun, sjónarhorn, sögumaður, umhverfi, tími, flétta, persónulýsingar.
- Ritun: Setning, málsgrein, efnisgrein, lykilsetning, miðja niðurlag, útdráttur.
Nemendur verða að klára heima þau verkefni sem ekki næst að vinna í kennslustundum...
- 6. Lesskilningspróf í Moodle
- Tímaverkefni útdráttur í Moodle
- Verkefni um beina og óbeina ræðu í Moodle
-
Hér er próf úr smásögunni Bládjúp. Prófið lokast 20. febrúar kl. 23:59. Prófið er opið í 60 mínútur og aðeins er hægt að fara tvisvar inn í það. Söguna og hljóðskrá má finna hér fyrir ofan.
Gangi ykkur vel.