Áfanginn er ætlaður nemendum á félags- og hugvísindabraut. Meginmarkmið áfangans er að auka og auðga orðaforða, efla skilning á grundvallarhugtökum félags- og hugvísinda, þjálfa lestur faglegra texta og skáldverka sem fjallað er um á fræðilegan hátt, hagnýta sérhæfðan orðaforða t.d. með ritun útdrátta, heimildaritgerða og kynninga. Lögð er áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt og í hópum með fjölbreytt efni og margvísleg verkefni innan hugvísindanna.