Verkefni - líkamsbeiting.

Verkefnið er tvíþætt; Annars vegar skrifar þú í verklagsvinnubókina punkta út frá myndböndunum, þ.e. minnispunkta til að muna aðalatriði eða áhersluatriði við líkamsbeitingu í umönnun (þarf ekki að vera langt). Hins vegar svarar þú eftirfarandi spurningum og setur bæði spurningarnar og svörin í skjalið sem þú skilar inn í skilakassann. 

Spurningar um líkamsbeitingu:

  1. Hverjar eru grunnhreyfingarnar í umönnun og til hvers?
  2. Hvaða vöðvahópa er aðallega verið að nota þegar að aðstoðað er í umönnun?
  3. Hvernig er hnébeygja (lýsa)?
  4. Hvernig er gangstaða (lýsa)?
  5. Hvernig er gleiðstaða (lýsa)?
  6. Hvaða líkamshlutar eru þyngstir hjá liggjandi einstaklingi?
  7. Lýstu hvernig á að leiðbeina sjúklingi að færa sig ofar í rúmi.
  8. Nefndu þrjú atriði sem þú leiðbeinir sjúklingi við að standa sjálfur á fætur úr stól.
  9. Hvað gerir þú til þess að auðvelda þér/ykkur við að flytja sjúkling ofar í rúmið (nefna 3 atriði)?
  10. Hvað gerir þú til þess að auðvelda þér/ykkur að snúa sjúklingi í rúmi?
Síðast breytt: föstudagur, 13. mars 2026, 9:14 AM