Verkefni vikunnar um umbúnað og sjúkrarúm. 

  1. Byrja á vinnubókinni um verklagsreglur. Nemandi horfir á myndbönd um þrif á rúmi, umbúnað á auðu rúmi, hvernig skipt er á rúmi með sjúklingi í og skrifar verklagsreglur út frá því. Lýsing á verklagsreglum er hægt að sjá undir verkefni um það. Þetta verkefni fer því inn í þá vinnubók og er því metið þegar að hún er orðin fullunnin. Það er því enginn skilakassi í þessari viku þar sem þið skilið vinnubókinni þegar að þið hafið klárað allt sem fer í hana. Myndböndin eru erlend svo það er ekki sæng og sængurver og frágangur því aðeins öðruvísi en hér en við förum þá yfir það í verklega hlutanum. Eins förum við þá yfir mbúnað frá höfðalagi en það er ekki á myndbandi. Ég set hér fyrir neðan afrit úr verkefnalýsingu á vinnubókinni:  Nemandi skal: 
  • Þekkja helstu verklagsreglur fyrir hverja verklega aðgerð.
  • Útskýra ferlið skref fyrir skref, í réttri röð.
  • Draga fram mikilvæga öryggisþætti og sýna skilning á afleiðingum ef verklagi er ekki fylgt.
  • Geta greint tæki, búnað og undirbúning sem þarf fyrir hverja aðgerð.
  • Endurspegla eigin skilning og geta tengt verklagið við umsjón og umönnun sjúklinga.

 

Nemandi horfir á myndband um verklega framkvæmd og skrifar niður helstu atriði, s.s. tilgang, búnað, undirbúning, framkvæmd og öryggi.

Dæmi um uppsetningu/atriði: Fyrir hvert myndband/verklega framkvæmd skrifar nemandi:

  • Heiti aðgerðar / verklags og tilgang
  • Búnaður sem þarf
  • Stutt lýsing á undirbúningi
  • Framkvæmd skref fyrir skref (í eigin orðum)
  • Öryggisatriði sem þarf að hafa í huga
Last modified: Sunday, 25 January 2026, 11:46 AM