Verkefni vikunnar - verklagsreglur í vinnubók.
متطلبات الإكمال
Verkefni vikunnar um umbúnað og sjúkrarúm.
- Byrja á vinnubókinni um verklagsreglur. Nemandi horfir á myndbönd um þrif á rúmi, umbúnað á auðu rúmi, hvernig skipt er á rúmi með sjúklingi í og skrifar verklagsreglur út frá því. Lýsing á verklagsreglum er hægt að sjá undir verkefni um það. Þetta verkefni fer því inn í þá vinnubók og er því metið þegar að hún er orðin fullunnin. Það er því enginn skilakassi í þessari viku þar sem þið skilið vinnubókinni þegar að þið hafið klárað allt sem fer í hana. Myndböndin eru erlend svo það er ekki sæng og sængurver og frágangur því aðeins öðruvísi en hér en við förum þá yfir það í verklega hlutanum. Eins förum við þá yfir mbúnað frá höfðalagi en það er ekki á myndbandi. Ég set hér fyrir neðan afrit úr verkefnalýsingu á vinnubókinni: Nemandi skal:
- Þekkja helstu verklagsreglur fyrir hverja verklega aðgerð.
- Útskýra ferlið skref fyrir skref, í réttri röð.
- Draga fram mikilvæga öryggisþætti og sýna skilning á afleiðingum ef verklagi er ekki fylgt.
- Geta greint tæki, búnað og undirbúning sem þarf fyrir hverja aðgerð.
- Endurspegla eigin skilning og geta tengt verklagið við umsjón og umönnun sjúklinga.
Nemandi horfir á myndband um verklega framkvæmd og skrifar niður helstu atriði, s.s. tilgang, búnað, undirbúning, framkvæmd og öryggi.
Dæmi um uppsetningu/atriði: Fyrir hvert myndband/verklega framkvæmd skrifar nemandi:
- Heiti aðgerðar / verklags og tilgang
- Búnaður sem þarf
- Stutt lýsing á undirbúningi
- Framkvæmd skref fyrir skref (í eigin orðum)
- Öryggisatriði sem þarf að hafa í huga
آخر تعديل: الأحد، 25 يناير 2026، 11:46 AM