Myndbands verkefni: 

Veldu þér eitthvað efni og gerðu heilbrigðisfræðslu-myndband. Það má hugsa það fyrir einhvern ákveðinn aldurshóp eða almennt. Endilega að nota allt sem þér dettur í hug, hægt að teikna upp á blað til að útskýra líka. 

Dæmi um efni:  

1. Farið yfir smitleiðir og smitvarnir. Fræðslumyndband um t.d. smithringinn; segja frá smitleiðum og hvernig sé hægt að koma í veg fyrir smit og þá sýna mun á beinu og óbeinu smiti og svo frv. Segja hvernig hægt er að draga úr smiti s.s. handþvott og öðru. Sýnir frá  hvernig handþvottur og aðrar smitvarnir eru gerðar og segir frá mikilvægi þeirra og hvaða sýkingar þær koma í veg fyrir sé þeim ábótavant. 

2. Forvarnarmyndband tengt slysum (t.d. hægt að gera út frá dæmum um slys í heimahúsum almennt, fræðsla tengt bruna, umferðarfræðsla til barna..... ) 

3. Myndband um hvernig eigi að nota einhvern "búnað", s.s. barnabílstóla, smokkinn, öryggisbúnað við eitthvað sport (ef þú átt slíkt). 

4.  Sýna rétta líkamsbeitingu við hinar ýmsu athafnir. 

6. Eitthvað annað sem þér dettur í hug tengt heilbrigðisfræðslu. 

Þú þarft að koma fram í myndbandinu og tímalengd myndbandsins er 7-10 mínútur. Það má gera myndbönd, eða um fleira en eitt viðfangsefni. 

Hægt er að skila inn link á verkefnið í skilakassann eða senda í tölvupósti á anny.b.palmadottir@vma.is 

آخر تعديل: الاثنين، 30 مارس 2026، 10:07 PM