Heilbrigðisfræðsla

Verkefnið felst í því að búa til heilbrigðisfræðslu úr efni eins kafla í kennslubók, sem ekki er farið í hér á moodle (sjá námsáætlun). Heilbrigðisfræðslan getur farið fram með ýmsu móti og nú er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða. Þú ræður aðferð/útfærslu. Sem dæmi þá getur þú búið til bækling, veggspjald, fyrirlestur með þulun (voice thread), vefsíðu, myndband eða annað sem þér dettur í hug. Segðu einnig frá því afhverju þú valdir þá framsetningu sem þú valdir. 

Notaðu bæði kennslubók og efni af netinu við að útbúa heilbrigðisfræðsluna. Mundu að vísa til heimilda og gera heimildaskrá. Getur haft til hliðsjónar efni um hvernig setja á fræðslu fram á bls. 56 í bókinni um vinnuferli.

Ef einhverjar spurningar vakna þá er um að gera senda mér póst. 

Gangi þér vel, Anný



Síðast breytt: sunnudagur, 15. febrúar 2026, 9:30 PM