Verkefni 4
Heilbrigðisfræði
Verkefni kafli 5
Lesefni: 5. kafla í kennslubókinni, glærur, ítarefni á netinu.
Verkefni: Svaraðu eftirfarandi spurningum:
-
Hvað er annars vegar algengi sjúkdóma og hins vegar nýgengi sjúkdóma?
-
Hvaða þrír sjúkdómar valda helst dauðsfalli á Íslandi, núna og svo fyrir 20 árum síðan ?
-
Hvað er álagssjúkdómur og nefndu dæmi um slíka sjúkdóma.
-
Hvort lifa karlar eða konur lengur og hvers vegna?
-
Hverjar eru helstu orsakir sálfélagslegra vandamála og nefndu dæmi um forvarnir við þeim.
-
a. Hvað er ofnæmi (hvað gerist í líkamanum), b. nefndu nokkur sjúkdómseinkenni, c. nefndu fjögur dæmi um fæðuofnæmisvalda, d. hve stórt hlutfall barna með fæðuofnæmi læknast á fyrstu þremur árunum?
-
Nefnið fyrirbyggjandi aðgerðir fyrir börn sem eiga í hættu á að fá ofnæmi og astma
-
Hver er munurinn á hjartakveisu og hjartaslagi ?
-
Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúkdóma?
-
Hvernig myndast krabbamein og nefnið áhættuþætti við krabbameini.
-
Hvernig er best að koma í veg fyrir smitsjúkdóma?
-
Hvað er heilablóðfall og hverjar eru algengustu afleiðingar heilablóðfalls?
-
Hver eru 2 algengustu krabbameinin hjá annars vegar körlum og hins vegar konum?
-
Hvort er nýgengi krabbameins að hækka eða lækka hjá konum og körlum á Íslandi?
Gangi þér vel, Anný