Heilbrigðisfræði

Verkefni kafli 5 

Lesefni: 5. kafla í kennslubókinni, glærur, ítarefni á netinu.

Verkefni: Svaraðu eftirfarandi spurningum:

  1. Hvað er annars vegar algengi sjúkdóma og hins vegar nýgengi sjúkdóma?

  2. Hvaða þrír sjúkdómar valda helst dauðsfalli á Íslandi, núna og svo fyrir 20 árum síðan ?

  3. Hvað er álagssjúkdómur og nefndu dæmi um slíka sjúkdóma.

  4. Hvort lifa karlar eða konur lengur og hvers vegna?

  5. Hverjar eru helstu orsakir sálfélagslegra vandamála og nefndu dæmi um forvarnir við þeim.

  6.  a. Hvað er ofnæmi (hvað gerist í líkamanum), b.  nefndu nokkur sjúkdómseinkenni, c. nefndu fjögur dæmi um fæðuofnæmisvalda, d. hve stórt hlutfall barna með fæðuofnæmi læknast á fyrstu þremur árunum? 

  7. Nefnið fyrirbyggjandi aðgerðir fyrir börn sem eiga í hættu á að fá ofnæmi og astma

  8. Hver er munurinn á hjartakveisu og hjartaslagi ?

  9. Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúkdóma?

  10. Hvernig myndast krabbamein og nefnið áhættuþætti við krabbameini.

  11. Hvernig er best að koma í veg fyrir smitsjúkdóma?

  12. Hvað er heilablóðfall og hverjar eru algengustu afleiðingar heilablóðfalls?

  13. Hver eru 2 algengustu krabbameinin hjá annars vegar körlum og hins vegar konum?

  14. Hvort er nýgengi krabbameins að hækka eða lækka hjá konum og körlum á Íslandi? 

Gangi þér vel, Anný

Senest ændret: mandag den 9. februar 2026, 21:27