Verkefni 3
Lesefni: lesið 4. kafla í kennslubókinni.
Verkefni: Svaraðu eftirfarandi spurningum, hafðu spurningarnar með í skjalinu sem þú skilar inn.
-
Nefndu 2 dæmi til að skýra út annars vegar einstaklingsmiðaða heilbrigðisfræðslu og 2 dæmi fyrir samfélagsmiðaða heilbrigðisfræðslu?
-
Hvaða opinberir aðilar gegna mikilvægasta hlutverkinu í heilbrigðisfræðslu á Íslandi?
-
Gerðu lista yfir frjáls félagasamtök sem taka þátt í heilbrigðisfræðslu.
-
Komdu með dæmi um einhverja heilbrigðisfræðslu sem þú hefur séð eða heyrt og er fyrst og fremst í viðskiptaskyni?
-
Hvaða heilbrigiðisfræðsla hefur náð best til þín og hvers vegna?
-
Hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að fræðslan hafi áhrif?
-
Hvaða siðferðislegar kröfur þarf að gera til heilbrigðisfræðslu?
-
Nefnið helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar koma á heilbrigðisfræðslu á framfæri.
-
Hvar telur þú að þurfi að efla heilbrigðisfræðslu á Íslandi til að fyrirbyggja eða draga úr heilsufarsvandamálum?
-
Búðu til eina krossaspurningu úr kaflanum og skráðu rétt svar við henni.
Gangi þér vel, Anný.