Heilbrigðisfræði

Verkefni 3. kafli.

Lesefni: lestu 3. kafla í kennslubókinni.

Ítarefni: Internetið :)

Verkefni: Svaraðu eftirfarandi spurningum.

  1. Í hve marga flokka er forvörnum skipt og hver er munurinn á þeim?

  2. Hvert er höfuðmarkmið alls forvarnarstarfs?

  3. Hvað eru áhættuþættir og nefndu dæmi? 

  4. Nefndu fjögur atriði/þætti sem þú gerir sem getur flokkast sem heilsufarsleg forvörn (við sjúkdómum).

  5. Nefndu 5 aðgerðir gegn áhættuþáttum sjúkdóma og lýstu hverjum þeirra?

  6. Nefndu helstu ástæður fyrir lækkandi dánartíðni undanfarna áratugi og nefndu helstu heilsufarsvandamál á vesturlöndum í nútímanum.
  7. Hvernig hefur opinber stefna í heilbrigðismálum breyst á undanförnum áratugum?
  8.  Nefndu fimm af þeim áskorunum sem þjóðin stendur frammi fyrir samkvæmt heilbrigðisstefnu Íslands til 2030, sem þér finnst mikilvægast að vinna að og færðu rök fyrir því. 
  9. Kynntu þér eitthvað forvarnarstarf á netinu ( heimasíða-stofnun-félag) og greindu frá síðunni/forvarnarstafinu (s.s. Tilgangi, eru upplýsingar aðgengilegar, kemst starfið til skila, í hvernig formi eru forvarnirnar, þitt álit).

Gangi þér vel, Anný

Senest ændret: søndag den 1. februar 2026, 21:21