Heilsufarsmat og -markmið - 5%

Þú þarft ekki kennslubókina í þetta verkefni. Þú metur út frá þinni bestu vitneskju :) Þú skrifar:  

a) smá kynningu á sjálfri/sjálfum þér (búseta, fjölskylduhagir, áhugamál og að hverju þú stefnir í námi og fleira sem þú vilt að komi fram)

b) því næst metur þú eigin heilsu og lífsstíl, hvað þú telur gott/hollt og hvað ekki

c) setur þér þrjú heilsufarsmarkmið (sem þú metur svo í lok annar í öðru verkefni - sjá námsáætlun), sem þurfa að vera SMART (Sértæk, mælanleg, með aðgerðaáætlun, raunhæf og tímasett). 

Verkefnið felst sem sagt í því að greina eigin lífsstíl og meta áhættuþætti (hvað sé ekki hollt) tengda honum. Þú metur andlega, félagslega og líkamlega heilsu hjá þér og setur þér svo heilsufarsmarkmið út frá SMART markmiðasetningu (sjá mynd sem fylgir vikunni).

Þú metur þína andlegu heilsu eftir þinni bestu vitneskju. Eru t.d. kvillar eins og kvíði og/eða svefnleysi að hrjá þig ? Áttu erfitt/auðvelt með að vera innan um fólk og eiga samskipti við fólk? ertu oft með höfuðverk, liðverki, ógleði eða aðra kvilla. Telur þú þig vera undir miklu álagi?

Erfitt getur verið að meta félagslega heilsu einstaklinga, það sem einum finnst félagsleg einangrun getur öðrum þótt hæfa sér og finnst viðkomandi bara að hann haldi sig út af fyrir sig. En hægt er að meta samskipti í vinnu, skóla, innan fjölskyldunnar og fleira í þeim dúr. Hérna skiptir máli hvernig einstaklingurinn upplifir sig.

Líkamleg heilsa, það er hægt að meta hana t.d. út frá þreki, styrkleika og úthaldi svo eitthvað sé nefnt. Hvernig telur þú þína líkamlega heilsu vera, ertu án líkamlegra sjúkdóma eða hvað er það sem þú metur sem góða líkamlega heilsu?

Ég minni á að öll verkefni eru meðhöndluð í trúnaði og það er enginn að fara að lesa vangaveltur ykkar nema ég :)

Gangi þér vel, Anný

آخر تعديل: الأحد، 1 فبراير 2026، 9:20 PM