Heilbrigðisfræði

Verkefni 1.

Lesefni: 1.  og 2. kafli í kennslubókinni 

Lesefni um svefn: https://persona.is/svefntruflanir-og-svefnsjukdomar/ 

Líkamsbeiting: https://island.is/hreyfi-og-stodkerfi/likamsbeiting 

Ítarefni: Veraldarverfurinn s.s. Landlæknisembættið, lýðheilsustöð, doktor.is og fl.

Verkefni: Svaraðu eftirfarandi spurningum. Hafðu bæði spurningarnar og svörin með í verkefninu sem þú skilar inn og hafðu nafnið þitt í verkefninu. 

  1. a) Við hvað er átt þegar sagt er að heilbrigði sé afstætt hugtak? b) Hvaða merkingu leggur þú í hugtakið heilbrigði.

  2. Skilgreindu eftirfarandi og komdu með fleira en eitt dæmi um: a) innra álag b) ytra álag 

  3.  a) Jón er með 5 cm opið sár, hvort eru þetta huglæg
    einkenni eða hlutlægt?
    b) Anna segist vera mjög kvíðin fyrir aðgerðinni, hvort er
    það huglægt eða hlutlægt?
    c) Nefndu 2 önnur huglæg og 2 önnur hlutlæg einkenni
    en spurt er um í a og b lið.
  4. Hver ber ábyrgð á heilsu fólks?

  5. Hvaða áhrif hefur líkamsþjálfun á heilsufarið (nefndu sjö atriði)?

  6. Segðu frá svefnstigunum og líkamsklukkunni

  7. Hvað er það í lífi fólks sem hefur áhrif á þvaglát, hægðir og svita?

  8. a) Hvað er eðlilegt að anda oft á mínútu? b) hvað er eðlilegt að hjartað slái oft á mínútu c) og að lokum hvað er eðlilegur blóðþrýstingur?

  9. Hvernig getur þú metið út frá þvaginu hvort einstaklingur hefur drukkið mikið eða lítið og hvort það sé eitthvað óeðlilegt við þvagið.

  10. Hvernig getur þú lagt mat á það hvernig andleg líðan fólks er?

  11. Kynntu þér bæklinginn um líkamsbeitingu við vinnu (sjá link hér f. ofan) og nefndu fimm atriði varðandi að lyfta einhverju þungu rétt. 

  12. Hvers vegna aukast líkur á stoðkerfisvanda hjá fólki í kyrrsetuvinnu?

  13. Í þarfa pýramída Maslows þá eru líkamlegar þarfir grunnþarfir okkar, komdu með dæmi um tvær líkamlegar grunnþarfir. Lýstu hvernig það birtist þegar að þeim þörfum er annars vegar fullnægt og hins vegar ekki fullnægt. 
  14. Á bls. 32 í bókinni er minnst á að flestir spyrji sig hver sé tilgangur lífsins, við þeirri spurningu er ekkert eitt rétt svar. Hver er tilgangur lífsins að þínu mati

Last modified: Saturday, 24 January 2026, 8:31 PM