Verkefni 2 - (kafli 2)
Heilbrigðisfræði 103
Verkefni 2.
Lesefni:
-
Lesið 2. kafla í kennslubókinni og glærur (lesa líka notes).
-
Lesefni um svefn: http://www.persona.is/index.php?action=articles&method=display&aid=97&pid=25
Ítarefni: Veraldarverfurinn s.s. Landlæknisembættið, lýðheilsustöð, doktor.is og fl.
Verkefni: Svarið eftirfarandi spurningum.
-
Hvaða áhrif hefur líkamsþjálfun á heilsufarið?
-
Segðu frá svefnstigunum og líkamsklukkunni?
-
Hvað er það í lífi fólks sem hefur áhrif á þvaglát, hægðir og svita?
-
Hvaða áhrif hefur andlegt og líkamlegt álag á hjartslátt og öndun?
-
a. Hvað er eðlilegt að anda oft á mínútu? b. hvað er eðlilegt að hjartað slái oft á mínútu c. og að lokum hvað er eðlilegur blóðþrýstingur?
-
Hvernig getur þú metið út frá þvaginu hvort einstaklingur hefur drukkið mikið eða lítið og hvort það sé eitthvað óeðlilegt við þvagið?
-
Hvernig getur þú lagt mat á það hvernig andleg líðan fólks er?
-
Nefndu 4 dæmi um ranga líkamsbeitingu?
-
Nú eru til hinar ýmsu ráðleggingar um mataræði, fyrir utan ráðleggingar frá landlæknisembættinu ( https://www.landlaeknir.is/heilsa-og-lidan/verkefni/item25765/Radleggingar-um-mataraedi-%E2%80%93-Endurskodun-2015) s.s. vegan, keto, carb nite, 5:2 mataræði, miðjarðarhafsmataræðið og fl. Skoðaðu annars vegar ráðleggingarnar frá landlæknisembættinu og berðu það saman við eitthvað annað mataræði (finnur efni á netinu). Segðu í stuttu máli frá hvað sé ólíkt og hvort mataræðið telur þú að sé heppilegra? færðu rök fyrir því.
-
Á bls. 32 í bókinni er minnst á að flestir spyrji sig hver sé tilgangur lífsins, við þeirri spurningu er ekkert eitt rétt svar. Hver er tilgangur lífsins að þínu mati