Sæll kæri nemandi.

Ég heiti Anný Björg Pálmadóttir og mun leiðbeina þér í gegnum þessa önn í Heilbrigðisfræði áfanganum.
Kennsla áfangans fer fram á Moodle kennsluvefnum. Ef þú hefur ekki notað Moodle áður þá ferðu inn á á vef Verkmenntaskólans á Akureyri (vma.is) til að komast inn á Moodle. Þú finnur hnapp á vma.is sem stendur á Moodle. Þegar smellt er á hann, þá opnast forsíða Moodle kerfisins og á honum eru reitir þar sem þú ritar inn notendanafn og lykilorð.

Nemendur fá ekki lykilorð að kerfum heldur búa það til sjálfir. Nauðsynlegt er að kynna sér eftirfarandi: Notendanöfn og lykilorð | Verkmenntaskólinn á Akureyri (vma.is) Nýjir nemendur þurfa að velja sér lykilorð og fylgja skrefunum samkvæmt leiðbeiningum, eldri nemendur skulu athuga hvort að aðgangar þeirra virki sem skyldi. Ef þið lendið í vanda með innskráningu endilega sendið póst á hjalp@vma.is.

Á moodle: 

# Finnur þú þinn áfanga „ HBFR1HH05- Heilbrigðisfræði - Fjarkennsla“
# Þú smellir á hann.
# Í fyrsta sinn sem þú kemur í þennan áfanga þarftu að gefa svokallaðan "Skráningarlykill"
# Hann er: 2026
# Þú þarft bara að nota hann í þetta eina sinn til að komats í áfangann.
Þegar inn í áfangann er komið opnast heimasíða hans. Hún getur verið aðeins mismunandi útlits milli áfanga. En hægt er að sjá „Þátttakendur“: Þeir sem skráðir eru í áfangann. Mínir áfangar: Listi yfir þá áfanga sem þú hefur skráð þig í, sem þú getur notað til að hoppa á milli þeirra. Einkunnir: Þar getur þú séð einkunnir fyrir verkefnin þín.
Fyrir miðju eru kennsluvikurnar með upplýsingum um lesefni og verkefni vikunnar. Námsáætlun áfangans sérðu efst á heimasíðu áfangans (einnig á INNU). Skoðaðu hana vel. Þar eru upplýsingar um námsefni, yfirferð, námsmat o.fl. Fyrsta verk er síðan að útvega sér kennslubókina (sjá á námsáætluninni).

Fyrsta verkefnið er komið inn en fyrir það þarf að lesa 1 og 2. kafla bókarinnar (einnig fylgja glærur með). Ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft frekari skýringar á 1. verkefninu þá sendir þú mér póst hér á Moodle skilaboðunum (eða í tölvupósti).

Ég mun síðan setja inn nýtt efni í síðasta lagi á mánudögum og þú skilar því verkefni fyrir miðnætti næsta sunnudag á eftir. Ef eitthvað kemur uppá sem hefur áhrif á námsframvindu þína, láttu mig þá vita og við reynum að finna lausn á því, ég er hér til að aðstoða. Mikilvægt er að hafa samband fyrir verkefnaskil ef þú ert t.d. lasinn og vilt óska eftir fresti á skilum. 

Endilega sendu mér póst ef eitthvað er óljóst.

Ég vona að þér gangi vel í áfanganum og hlakka til að vinna með þér :)

Kær kveðja, Anný

Síðast breytt: laugardagur, 24. janúar 2026, 9:11 PM