Verkefni - vinnustaðurinn

Lesefni: Efnið sem fylgir vikunni og annað efni sem þið finnið á netinu, en athugið að vísa til þess efnis sem þið notið í svörunum. Þ.e. hafið tilvísanir (má vera bara slóðin, eða skrifa úr glærunum, velvirk og svo framvegis). 

Svaraðu eftirfarandi spurningum, hafðu spurningarnar með svörunum sem þú skilar inn. 

1. Hvað er ígrundun og hvernig fer hún fram?

2. Hvað er kulnun í starfi, hver eru einkenni hennar og hvaða áhrif hefur hún á vinnustaðinn?

3. a. Þegar starfsmaður verður fyrir andlegum veikindum, hvert er þá hlutverk stjórnandans þegar að hann tekur eftir fleiri veikindadögum eða að veikindin hafi áhrif á vinnuna?

b. Hvert er hlutverk stjórnanda við endurkomu starfsmanns eftir andleg veikindi?

4. a.  Hver eru einkenni starfsmanns sem kallaður er “eitraður starfsmaður”? 

b. Hvaða áhrif getur það haft á aðra starfsmenna/fyrirtækið/teymið? 

c. Hvað er hægt að gera til að bæta slíkt ástand? 

5. Hvað er gagnsæi á vinnustað og nefndu fimm aðferðir til að auka á gagnsæi. 

6. Hvað getur starfsmaður gert til að auka á ánægju sína í starfi? 

7. Veldu a eða b:

a. Þú ert nýbyrjuð að vinna sem sjúkraliði á stóru sjúkrahúsi. Fljótlega tekur þú eftir því að einn hjúkrunarfræðingurinn á deildinni þinni er greinilega lagður í einelti af samstarfsfólki þínu, henni er strítt, það leitar enginn álits hjá henni og fólk forðast að vinna verk með henni. Þá hefur samstarfsfólk þitt keppst við að segja þér sitt álit á viðkomandi hjúkrunarfræðingi og ráðleggja þér hvernig þú eigir að koma fram við hana.

Hvernig bregst þú við? Hvernig myndir þú bregðast við ef þú værir deildarstjórinn á viðkomandi deild? Rökstuddu svörin.

b. Þú ert í skemmtinefnd á deildinni þinni og átt að skipuleggja dag fyrir samstarfsfólkið. Hvað myndir þú gera með hópnum ef markmiðið væri að bæta starfsandann og efla liðsheildina til að vinna vel saman? (Þú þarft ekki að pæla í kostnaði!). Mundu að rökstyðja.

8. Veldu eitt; a. b. eða c

a. Þú ert að vinna á öldrunardeild þar sem miklar endurbætur á húsnæði og tækjakosti standa yfir. Þú færð það verkefni að koma með tillögur um aðbúnað starfsfólks á deildinni, s.s. vinnuaðstöðu, aðstöðu fyrir starfsfólk, hjálpartæki og fleira. Hvað myndir þú leggja til og af hverju?

b. Þú ert í fræðslunefnd sjúkraliða á stóru sjúkrahúsi og átt að skipuleggja fræðsludag fyrir alla sjúkraliða á sjúkrahúsinu. Hvernig yrði dagskáin? Rökstuddu val þitt á dagskrárliðum.

c. Þú ert sjúkraliði á lyfjadeild og nýútskrifaður sjúkraliði (ung og dugleg stelpa) leitar til þín vegna þess að hún hafði orðið fyrir kynferðislegri áreitni frá ákveðnum aðila sem hún vill ekki nefna hver er. Það eina sem hún nefnir er að hann er á vinnustaðnum og hún þarf oft að vinna náið með viðkomandi. Hún biður um ráð frá þér og hvað hún geti gert til að þessu linni. Hvað myndir þú ráðleggja og af hverju (vitnaðu til heimilda)?

9. Gerðu æfinguna um að láta drauma þína rætast (sjá myndband sem fylgir vikunni) og svaraðu hvar þú sérð þig eftir 3 ár og hvort það sé eins og þú reiknaðir með (það má líka gera þetta við einhvern og greina frá því). 

Gangi þér vel

Anný

Ostatnia modyfikacja: niedziela, 26 kwietnia 2026, 14:17