Verkefni- menningarheimar og aðstandendur.

Lesefni:  Lesefni sem fylgir vikunni.

Búðu til glærukynningu út frá lesefni vikunnar og þú getur haft eftirfarandi spurningar til hliðsjónar, hvort sem þú hefur þær sem yfirskrift á glærum (eða einhverjum glærum) eða hefur aðra yfirskrift en innihaldi þetta efni. Settu slóðir eða heiti á greinunum sem þú notar með í notes ásamt texta sem þyrfti að fylgja með. 

1. Berðu saman (í stuttu máli) það sem skiptir máli í hjúkrun og samskiptum heilbrigðisstarfsfólks við eftirfarandi trúarhópum:

      1. Gyðingdóm

      2. Búddisma

      3. Islam (Múhameðstrú)

      4. Vottum Jehóva.

2. a. Hvað er mikilvægt í samskiptum við aðstandendur ? b. Hvernig og hvað þarf að hafa í huga við að ræða við börn sem eru aðstandendur? (vitnaðu til lesefnis)

3. Hver eru algeng viðbrögð við slæmum fréttum og/eða áföllum? (vitnaðu til lesefnis)

4. Hvernig er „best“ að flytja slæmar fréttir? (vitnaðu til lesefnis)

5. Hvað þarf að hafa í huga í samskiptum við "erfiða" sjúklinga? (vitnaðu til lesefnis)

Gangi þér vel, Anný

Ostatnia modyfikacja: niedziela, 19 kwietnia 2026, 18:26