Verk. 9 Menningarheimar, slæmar fréttir og aðstandendur
Verkefni- menningarheimar og aðstandendur.
Lesefni: Lesefni sem fylgir vikunni.
Búðu til glærukynningu út frá lesefni vikunnar og þú getur haft eftirfarandi spurningar til hliðsjónar, hvort sem þú hefur þær sem yfirskrift á glærum (eða einhverjum glærum) eða hefur aðra yfirskrift en innihaldi þetta efni. Settu slóðir eða heiti á greinunum sem þú notar með í notes ásamt texta sem þyrfti að fylgja með.
1. Berðu saman (í stuttu máli) það sem skiptir máli í hjúkrun og samskiptum heilbrigðisstarfsfólks við eftirfarandi trúarhópum:
-
Gyðingdóm
-
Búddisma
-
Islam (Múhameðstrú)
-
Vottum Jehóva.
2. a. Hvað er mikilvægt í samskiptum við aðstandendur ? b. Hvernig og hvað þarf að hafa í huga við að ræða við börn sem eru aðstandendur? (vitnaðu til lesefnis)
3. Hver eru algeng viðbrögð við slæmum fréttum og/eða áföllum? (vitnaðu til lesefnis)
4. Hvernig er „best“ að flytja slæmar fréttir? (vitnaðu til lesefnis)
5. Hvað þarf að hafa í huga í samskiptum við "erfiða" sjúklinga? (vitnaðu til lesefnis)
Gangi þér vel, Anný