Viðtalsverkefni 

Þetta verkefni gengur út á það að taka viðtal/samtal upp á myndband, annað hvort út frá viðfangsefni sem gefið er upp hér fyrir neðan eða að þú finnur þitt viðfangsefni. 

Þú þarft líklega að fá aðstoð tveggja annarra (einn sem sjúkling/viðmælanda og annan í að taka upp). 

  • Verkefnið felst í því að taka upp viðtal þar sem þú þarft að leika sjúkraliða/heilbrigðisstarfsmann en einhver annar leikur sjúkling. Viðfangsefnið/umræðuefnin eru hér f. neðan.

  • Athyglin er á þeim sem leikur sjúkraliðann en ekki sjúklinginn. Gefin er einkunn út frá sjúkraliðanum en auðvitað þarf sá sem leikur sjúklinginn líka að vanda sig.

  • Notið spuna en gott að vera búin að gera smá uppkast (handrit) áður en farið er af stað. Mundu að það eru ekki bara orðin sem skipta máli heldur einnig hvernig þú segir hlutina (tjáning án orða). Hvert viðtal á að vera um 3 mínútur (fyrir utan kynningu). 

  • Nýttu þér það sem þú hefur lesið í vetur .

  • Byrjaðu verkefnið á því að kynna verkefnið, segja nafn þitt og hvers konar samskipti eigi að fara fram (þessi kynning er ekki innan tímarammans).

  • Byrjaðu verkefnið með því að heilsa sjúkling síðan ræður þú alveg hvernig þú heldur áfram út frá viðfangsefninu.

Viðfangsefni – umræðuefni

Hver nemandi sem leikur sjúkraliðann velur sér eitt viðfangsefni (sjúklingurinn er þá viðfangsefnið): 

  • Þögul, feimin persóna sem þorir ekki að sýna neinar tilfinningar eða þarfir.

  • Döpur, þunglynd persóna sem hefur hæg andleg og líkamleg viðbrögð

  • Reið, óvinveitt persóna sem hlustar ekki á útskýringar

  • Málgefin, einmanna persóna sem vill alltaf hafa einhvern hjá sér

  • Persóna sem slúðrar og talar mikið, brýtur trúnað og skapar óánægju

  • Erlendur skjólstæðingur sem talar litla íslensku

  • Hjálpa sjúkling fram úr eftir aðgerð

  • Sjúklingur sem er hræddur eftir hjartaáfall

  • Sjúklingur sem er dapur eftir heimsókn ættingja

  • Tala við sjúkling um erfiðar aðstæður; 1skilnað, 2dauðsfall, 3ósætti í fjölskyldunni eða 4 að greinast með alvarlegan langvinnan sjúkdóm.

  • Hávær, stjórnsöm, ósamvinnufús manneskja sem orsakar truflun og er að brjóta reglur deildarinnar

  • Þið reynið að hafa þetta „faglegt“ en ekki er verið að leita að besta leikaranum né bestu myndinni.

  • Verkefnið er skylduverkefni í áfanganum – það verða allir að skila.

  • Skil á verkefninu: í tölvupósti eða senda mér link á youtube eða google+ á word skjali sem sett er inn í skilakassann á moodle.

Góða skemmtun!



آخر تعديل: الاثنين، 13 أبريل 2026، 7:44 AM