Verkefni sjúkdómar og fordómar
Sjúkdómar og fordómar
1) Farðu á heimasíðu Þroskahjálpar (www.throskahjalp.is) finndu stefnu Þroskahjálpar (http://www.throskahjalp.is/is/moya/page/stefnuskra-landssamtakanna-throskahjalpar ). Veldu einn kafla af þessum 11 til að fjalla um.
(a) Samantekt um kaflann (á stuttan og skilmerkilegan hátt).
(b) Hvað finnst þér vera áhugaverðast í kaflanum? Var eitthvað sem kom þér á óvart? Hvernig er staðið að þessu máli (sem fjallað er um í kaflanum) hér á landi?
(d) Hvernig birtast fordómar á þessum sviðum sem þú fjallar um. Mátt gjarnan rökstyðja með tilbúnum eða raunverulegum dæmum og tengja við heilbrigðiskerfið og hjúkrun (störf sjúkraliða).
2) Lestu greinina um sjúkdóma og fordóma (sjá viðhengi), fordómar og skilningsleysi, glærurnar og aðrar greinar vikunnar. Mátt gjarnan leita eitthvað á Netinu (mundu að setja slóðirnar inn í verkefnið). Í þessu verkefni átt þú að velta fyrir þér:
(a) Af hverju eru fordómar út í suma sjúkdóma og ákveðna sjúklingahópa. Rökstuddu mál þitt með raunverulegum eða tilbúnum dæmum ásamt tilvísun í efni vikunnar.
(b) Hvernig birtast þessir fordómar almennt, í hjúkrun og störfum sjúkraliða (gefðu dæmi).
(c) Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að starfsfólk í heilbrigðisþjónustu hafi fordóma út í sjúkdóma og ákveðna sjúklingahópa.
3) Fjallaðu um fordóma gegn einhverju sem er innan heilbrigðiskerfisins, út frá lesefni vikunnar, hér fyrir neðan og/eða efni sem þú finnur á veraldarvefnum (muna að láta slóð á efni fylgja með). Getur haft það með sögulegu ívafi (þróun)og settu jafnframt fram þitt álit í lokin.
Fordómar og geðræn vandamál- samanburður á 3 löndum: https://rafhladan.is/bitstream/handle/10802/410/Ford%C3%B3mar%20og%20ge%C3%B0r%C3%A6n%20vandam%C3%A1l.%20Samanbur%C3%B0ur%20%C3%A1%20%C3%BEremur%20l%C3%B6ndum.pdf?sequence=1
Fordómar og félagsleg útskúfun (fatlaðir): https://www.obi.is/static/files/skjol/pdf-skyrslur/fordomar_og_felagsleg_utskufun_juli2014.pdf
Af hverju er fólk á móti fötluðum?: https://www.visindavefur.is/svar.php?id=1686#
Hindra fordómar og viðhorf endurhæfingu einstaklinga með geðklofa?:
https://core.ac.uk/reader/38277440
4) Fordómar gagnvart hópum valda ytri og innri útskúfun. Lýstu hvað felst í ytri og innri útskúfun og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir líðan og heilsu einstaklinga með geðsjúkdóma.
5) Lýstu hvað átt er við með að við getum forðast fordóma með því að huga að hugtakanotkun, í samnefndri grein eftir Guðrúnu Ebbu og Kristínu.
Gangi þér vel, Anný