Hugmyndir okkar um annað fólk.

Lesefni: Glærur, myndböndin, greinar af netinu og getur fundið meira efni á netinu. Mundu að rökstyðja og setja spurningarnar með í svarið þitt :)

Verkefni:

  1. Skoðaðu glærurnar og lestu greinina sem slóðin er af inni á persóna.is

    ( https://persona.is/samskipti-vidhorf-fordomar/  ) og dragðu saman með eigin orðum hvernig við myndum okkur hugmyndir um annað fólk. Þ.e. Hvers vegna/fyrir hvað drögum við ályktanir um aðra og hvað segir það um okkur sjálfRökstuddu mál þitt með því að koma með raunveruleg eða tilbúin dæmi.

  2. Hvað eru staðalmyndir annars vegar og fordómar hins vegar (skilgreina)?

  3. Hverjar eru helstu staðalmyndir kynjanna og eru þær sanngjarnar (rök)?

  4. Hvað er sterkasta aflið sem breiðir út og viðheldur kynjahlutverkum? 

  5. Komdu með dæmi um staðalmyndir þjóða/þjóðflokka og settu fram lýsingu á þeim staðalmyndum.

  6. Ígrundaðu eigin fordóma og finndu út fyrir hverju þú hefur fordóma og hvað geti hugsanlega valdið þeim.

  7. Hverjar geta afleiðingar fordóma verið og hvernig er hægt að vinna gegn þeim?

  8. a. Hvaða fordómar telur þú að séu algengir meðal Íslendinga? (vitna líka til efnis t.d. m. dæmum)

    b. Hvaða fordómum telur þú að Íslendingar hafi almennt sigrast á? (vitna líka til efnis t.d. með dæmum)

  9. Finndu fyrirsögn eða staðhæfingu í fjölmiðlum eða á netinu sem lýsir/eru fordómum/-ar fyrir einhverju. Settu fram þá setningu og slóðina á hana. 

  10. Færðu rök fyrir því út frá efni sem fylgir vikunni að börn hafi ekki fordóma og hvenær og hvernig telur þú að fordómar fari að þróast.

Gangi þér vel, Anný

Síðast breytt: sunnudagur, 1. mars 2026, 9:35 PM