VERKEFNI - líkamstjáning

Námsefni: 

  • Myndbönd um líkamstjáningu 
  • Glærurnar og lesefnið sem fylgir vikunni
  • Veldu eitt af myndböndunum um líkamstjáningu af ruv til að svara 1. sp. Þættirnir heita: Æfingin skapar meistarann, farsímaþræll, sviðsskrekkur og ágreiningur.

Verkefnið: 

  1. Veldu eitt af myndböndunum af RÚV (ágreiningur, sviðsskrekkur, farsímaþræll eða æfingin skapar meistarann) og fjallaðu um hvað þátturinn er og greindu frá þeim líkamstjáningarformum sem komu þar fram ásamt þínum vangaveltum um það. 

  2. Í hverju felst líkamstjáning og hvað getur hún sagt okkur?

  3. Hvað er hægt að lesa úr mismunandi handabandi? 

  4. Gefðu dæmi um líkamstjáningu einstaklings sem er: a) feiminn og óöruggur, b) sjálfsöryggur

  5. Hvað getum við lesið út frá tjáningu augnanna? (skoðaðu glærur og athugaðu hvort þú finnur frekari upplýsingar á netinu um tjáningu augnanana). 

  6. Gefðu þér tækifæri í einhvern tíma til þess að velta fyrir þér líkamstjáningu fólks (innan fjölskyldu, í búðinni, vinnunni, í sjónvarpinu (t.d. líka með slökkt á hljóðinu) eða hvar sem er) og segðu frá þinni upplifun af líkamstjáningu fólks. Segðu t.d. frá: 

    1. því hverju þú tókst eftir

    2. hvað fannst þér athyglisvert

    3. tókstu eftir tvöföldum skilaboðum? (eitt sagt með orðum og annað með látbragði/líkamstjáningu)

    4. gastu t.d. greint vel hvort fólk var sjálfsöruggt eða ekki? 


Gangi þér vel, Anný

Síðast breytt: sunnudagur, 22. febrúar 2026, 10:46 PM