Verkefni 4
Verkefni 4
Samskipti
Lesefni: Glærur og greinar um virka hlustun sem tilheyra vikunni.
Svaraðu eftirfarandi spurningum:
1. Hver er munurinn á þögulli hlustun og hvetjandi hlustun?
2. Gerðu grein fyrir samskiptaháttum sem ekki ætti að nota í hjúkrun annars vegar og hins vegar samskiptaháttum sem hjúkrunarmeðferð.
3. Hvernig getur þú metið samskipti þín við skjólstæðinga/aðra?
4. Gerðu grein fyrir:
- Persónumiðuðum hlustanda
- Verkefnamiðuðum hlustanda
- Innihaldsmiðuðum hlustanda og
- Tímamiðuðum hlustanda.
5. Oft á tíðum segja börn eitthvað sem okkur finnst ekki fallegt og við eigum þá til að koma með dæmandi athugasemdir eða reyna að aga barnið í stað þess að hlusta og skilja hvað það á við, t.d. gæti barn sagt „Mér finnst Kalli (bekkjarfélagi) ljótur“ . Viðbrögð okkar við þessari setningu barnsins gætu verið eitthvað á þá leið að við segjum barninu að svona tali maður ekki um bekkjarfélaga sína og allir eigi að vera vinir, þannig þöggum við niður í umræðunni. Hvað væri betra að gera í þessu dæmi og fyrir hvað væri ekki gott að þagga niður í umræðunni?
6. Muna að setja slóð af myndbandinu með í svörin við þessu verkefni (einnig hægt að senda það í tölvupósti á anny.b.palmadottir@vma.is
Gangi þér vel, Anný