Samskipti

Verkefni 3.

Ég og þú boð, yrt og óyrt tjáskipti, ákveðni og óákveðni

  1.  Lesefni: Glærur og greinar sem fylgja vikunni.

 Svarið eftirfarandi spurningum:

  1. Fjallaðu um muninn á ég boðum og þú boðum og búið til dæmi um ég og þú boð.

  2. Nefndu tvö atriði sem helst hafa verið skoðuð varðandi tengsl og tjáskipti.

  3. Nefndu fjóra þætti sem hafa áhrif á það hver sé talinn stjórna í samskiptum. 

  4. Gerðu grein fyrir átta atriðum í tjáskiptum án orða og hvaða áhrif þau hafa í tjáskiptum.

  5. Hvað þarf helst að hafa í huga þegar verið er að vinna við hjúkrun varðandi tjáskipti með og án orða.

  6.  Fjallaðu um það hvernig þú bregst við þrýstingi frá öðrum og hvaða leiðir þú telur árangursríkar til að láta ekki undan þrýstingi frá öðrum.

  7. Lýstu fimm leiðum um bætt samskipti.

  8. Ákveðnar hindranir eru í hlustun og samkennd í samskiptum, segðu frá fimm hindrunum. 

  9. Hvernig birtist ákveðni og óákveðni í samskiptum og hvernig tengist það sjálfstrausti?

  10.  Segðu frá fimm lyklum um árangursrík samskipti við gagnrýni með þínum orðum og búðu til sambærileg dæmi og getið er í glærunum um þessa lykla.

  11. Gerðu verkefnið sem er í linknum " Greining á erfiðleikum við ákveðni" og segðu frá á hvaða sviðum sýnist þér vanta áræðni/ákveðni? Skortir þig áræðni gagnvart einhverjum sérstökum einstaklingum eða við vissar aðstæður? Getur þú komið auga á eitthvert mynstur?

                                                    Gangi þér vel, Anný

Síðast breytt: sunnudagur, 8. febrúar 2026, 8:07 PM