Ákveðni er að tjá á beinan, heiðarlegan og viðeigandi hátt hugsanir, tilfinningar, þrár og þarfir, án þess að ganga á rétt annarra.

Í samskiptum skiptir tjáning miklu máli en ennþá mikilvægara er að hlusta. Okkur hættir oft til að tala of mikið og hlusta of lítið.

Í samskiptum eru sterk tengsl á milli sjálfstrausts og ákveðni. Þegar sjálfstraustið minnkar verðum við óákveðin og óörugg og þolum illa samanburð við annað fólk. Við vantreystum okkur og vanmetum eigin getu. Eftir því sem sjálfstraustið vex, verðum við ákveðnari sem kemur m.a. fram í aukinni færni við að taka ákvarðanir, fylgja þeim eftir og standa með okkur sjálfum.

Ákveðni og jákvæðni fylgjast oft að. Einstaklingar með gott sjálfstraust vita að hugsanir þeirra og viðhorf skipta máli. Uppbyggilegar eða jákvæðar hugsanir eins og þú hefur verið að vinna með auka vellíðan. Einstaklingar sem eru ákveðnir njóta frekar samvinnu og verkefna og fá aukna starfsorku við takast á við nýjar aðstæður og eru tilbúnari til að axla ábyrgð.

Óákveðni og neikvæðni fylgjast oft að. Einstaklingum með lítið sjálfstraust hættir til að sjá frekar hindranir og treysta sér síður til að taka ábyrgð.

 

HUGLEIÐING

Segðu JÁ

Þegar þú meinar JÁ og vertu glaður með það.

Ekki segja JÁ ef þú meinar NEI og sérð svo eftir því.

Segðu NEI

Þegar þú meinar NEI og stattu við það.

Ekki gefast upp og segja JÁ ef þú meinar NEI.

Stattu með ákvörðun þinni. Auðvitað er allt í lagi að skipta um skoðun ef ný rök koma í málið sem þú ert sáttur við.

Listin að segja NEI

Vertu stuttorður.

Æfðu þig í að nota orðið NEI.

Notaðu líkamstjáningu í samræmi við orð.

Slepptu afsökunarorðum.

Endurtaktu neitunina þar til hún er meðtekin.

Tjáðu þig að fullu, ekki bara til hálfs

Þú skalt segja það sem þú meinar og meina það sem þú segir. Forðastu „tvöföld skilaboð“ þ.e. segja eitt ef þú meinar annað eða ætlast til þess að aðrir viti hvernig þér líður og hvað þú vilt án þess að þú segir það.

 

HUGSANALESTUR

Þú ályktar neikvætt um hvað aðrir hugsa án þess að athuga það nánar. Þú telur þá til dæmis baktala þig, líta niður á þig, eða þú ályktar að þeir hafi engan áhuga á þér, án þess að hafa raunhæfar forsendur fyrir þessum túlkunum.

Að gefa skýr skilaboð er hluti af því að sýna ákveðni og færni í samskiptum. Hér á eftir koma nokkur dæmi um skýr tjáskipti sem geta hjálpað þér til þess að sýna ákveðni og færni í samskiptum. Þessi atriði eru leiðbeinandi en ekki algild. Hver og einn getur þróað sinn eigin stíl í samskiptum.

Talaðu fyrir sjálfan þig. Dæmi: „Ég er…“, „Mér finnst…“ o.s.frv. í staðinn fyrir „Maður er…“, „Mörgum finnst…“. Það ert þú sem ert að segja frá og tala fyrir sjálfan þig en ekki aðra. Þú getur t.d. aldrei haft á röngu að standa þegar þú ert að tjá þína eigin persónulegu skoðun eða líðan en auðveldlega haft rangt fyrir þér þegar þú ert að túlka fyrir aðra.

Biddu um það sem þú vilt fá. Ekki tala í gátum. Það er nauðsynlegt að þú tjáir óskir þínar, þarfir og langanir þannig að aðrir skilji þig. Þannig kemur þú óskum þínum til skila.

Veittu ekki fyrirgefningu nema þú sért tilbúinn til þess. Veittu ekki stuðning ef þú ert í vafa og lofaðu ekki upp í ermina á þér. Skýrt „nei“ getur kannski verið það besta sem þú gætir gefið öðrum, ef það er sönn tjáning frá þér.

Taktu ákveðna afstöðu - hættu að tala almennt um hlutina. 

DÆMI

 

 

„Enginn kann við mig“. Í staðinn nefnir þú þann sem ekki kann við þig og þá er hægt að taka á málinu. 

„Maður er alltaf hræddur í vissum tilfellum“. Hvað áttu við þarna?

„Enginn tekur mig alvarlega“. Hver tekur þig ekki alvarlega?

 

Segðu hvað þér finnst sjálfum í stað þess að spyrja 

DÆMI

 

„Líður þér ekki illa þegar þú ekur svona hratt?“ Það sem þú ert raunverulega að segja er „Aktu hægar, mér líður illa“. 

„Heldur þú að fólki þyki þetta ekki undarlegt?“, þú ert að segja „Mér finnst þetta undarlegt“.

 

Ef þú notar spurningar er betra að segja Hvernig? eða Hvað? Spurningin Hvers vegna? er áleitin og krefst skýringa, sem ekki eru alltaf fyrir hendi. Í þessari spurningu getur einnig falist ásökun.

 

SJÁLFSSTYRKUR

 Enginn hefur rétt á að lítilsvirða mig og ég læt engan telja mér trú um að ég sé lítils virði.

Ég stend á rétti mínum og læt skoðanir mínar í ljós.

Ég á auðvelt með að samgleðjast öðrum.

Mér finnst gott að fá hrós og ég kann að njóta þess.

Ég nýt þess að hrósa öðrum.

Ég hlusta vandlega á alla gagnrýni sem ég fæ því hún gæti reynst gott tækifæri til að þroskast.

Ég get gert góðlátlegt grín að mér.

Ég hef marga góða kosti sem munu gagnast mér.

Ég viðurkenni veikleika mína af því að ég veit að besta leiðin til að ná tökum á þeim er að hlæja

að þeim eða láta mér þykja vænt um þá.

Ég dæmi ekki fyrr en ég hef kynnt mér málavexti.

Það er allt í lagi að gera mistök.

Ég hef ánægju af því að kynnast fólki, sérstaklega því fólki sem er ólíkt mér.

Ég hlusta af athygli á aðra til að geta skilið þá betur.

Frá kennara: Fólki finnst oft erfitt að segja nei, finnst það vera að bregðast hinum aðilanum eða hafna honum. Hafið alltaf í huga, að þegar þið segið nei við einhvern eruð þið að segja já í leiðinni við einhverju öðru. T.d ef ég er beðin um að koma á kaffihús í kvöld með vinkonu og ég kann ekki við að segja nei. Ég segi því já við hana en væri að segja nei við samverustund með börnunum mínum í staðin. Ef ég hefði nú sagt nei eins og mig langaði að gera af því mig langar að vera með börnunum, þá um leið og ég segi nei við vinkonu er ég að segja já við að vera með börnunum. Alltaf gott að hafa í huga að nei og já þýðir eitthvað og gefur ykkur þá annað. Þess vegna er mikilvægt að svara eftir því sem ykkur langar að gera, ekki gera það fyrir aðra (nema auðvitað í einstaka tilfellum verðum við :) )

 


Senest ændret: søndag den 8. februar 2026, 20:07