Verkefni - Samskipti 

Tilfinningar.

Lesefni: Glærur og linkarnir sem fylgja vikunni. 

Svaraðu eftirfarandi spurningum. Hafðu spurningarnar með svörunum í skjalinu sem þú setur svo í skilakassann.  Mikilvægt er að vitna til lesefnis við gerð svaranna þar sem við á. 

Spurningar:

  1. Mat á samskiptum þínum: Hér þarftu að byrja á því að íhuga samskiptin þín yfir höfuð. Hugsaðu hvort það séu svipuð samskipti sem þú átt óháð fólki og aðstæðum, hvort að þú sért að sjá samskiptamunstur hjá þér sem kallar fram sömu tilfinningar og annað sem kemur upp við að velta fyrir þér samskiptum þínum. Svaraðu svo spurningunum hér frá a-e.  a. Hversu ánægð/-ur ert þú með samskiptin þín? b. Hvaða áhrif hefur það á fólkið í kringum þig? c. Hverjir eru þínir styrkleikar og veikleikar í samskiptum? d. Langar þig að bæta samskipti þín, afhverju og við hverja helst? e. Hvaða árangri vilt þú ná í samskiptum?

  2. Átt þú þér fyrirmynd í samskiptum, ef svo er hvað er það í hennar/hans fari sem þú vilt tileinka þér í þínum samskiptum? Ef þú átt þér ekki fyrirmynd í samskiptum, hugsaðu þá um einhvern sem þér líður vel í samskiptum við og finndu hvað það er í hans/hennar samskiptum sem kallar fram vellíðan. 

  3. Hvað er tilfinningagreind og hverjir eru fimm lykilþættir hennar samkvæmt Goleman?

  4. Goleman talar um sjö grunntilfinningar sem hann telur að allar aðrar tilfinningar séu settar saman úr. Þær eru: ánægja/gleði, kærleikur, viðbjóður, ótti, reiði, hryggð og undrun. Tilgreindu hvernig þú:

    1. Sýnir þessar tilfinningar og hvar finnst þér þú finna fyrir þeim í líkamanum (tilgreinir út frá hverri og einni tilfinningu)? 

    2. Hvaða hlutir/atburðir vekja hjá þér þessar sjö grunntilfinningar?

  5. Hvers vegna reiðist fólk (vitnið til samnefndrar greinar, komdu líka með þínar skýringar)? Telur þú það gott markmið að reiðast svo til aldrei og færðu rök fyrir svarinu? 

  6. Hvað felst í HAM meðferð og út á hvað gengur hún?

  7. Hvort kemur á undan hugsun eða tilfinning varðandi tengsl tilfinninga og hugsunar?

  8. Hvernig er hægt að mæla tilfinningar?

  9. Hvað er það sem við þurfum að hafa í huga með tilfinningar okkar og þeirra sem við hjúkrum þegar að við hjúkrum einhverjum?

  10. Fjallaðu um mikilvægi þess að þekkja eigin tilfinningar (einnig að meta út frá grein Matthildar) og fjallaðu um það hvar við erum stödd með það í samfélaginu og hvernig sé hægt að gera betur í þeim efnum. 

Gangi þér vel, Anný

آخر تعديل: الأحد، 1 فبراير 2026، 9:31 PM