Verkefni 1
Samskipti – Sjálfstraust
Verkefni 1
Lesefni: Lesið glærurnar um sjálfstraust.
Lesið greinarnar sem fylgja: s.s. Hvað er sjálfsmynd, Hvað er sjálfsstyrking, hvernig er best að byggja upp gott sjálfsöryggi? Hvað er heilbrigt sjálfsmat?
Svarið eftirfarandi spurningum:
-
A)Hvað merkja orðin hér fyrir neðan? Skrifaðu þínar vangaveltur um orðin, getur líka leitað að efni um þau.
B) Hvernig metur þú sjálfan þig í þessum orðum, s.s. hvernig sjálfstraust, sjálfsvirðing og svo frv. telur þú þig hafa
-
Sjálfstraust
-
Sjálfsvirðing
-
Sjálfsálit
-
Sjálfselska
-
Sjálfsmynd
-
-
Lestu glæruna um sjálfsmynd og 3 hluta hennar. Skrifaðu svo um þína sjálfsmynd út frá þessum 3 hlutum og hversu vel þeir passa saman.
-
Hvað ógnar sjálfstrausti fólks almennt og hvað finnst þér ógna þínu sjálfstrausti?
-
a. Hvað einkennir fólk í samskiptum sem hefur annars vegar gott sjálfstraust og hins vegar lélegt sjálfstraust? b. hvað einkennir þitt sjálfstraust? (lýstu því t.d. með dæmum í samskiptum).
-
Það má segja að sjálfsstyrkur sé hinn gullni meðalvegur milli uppburðarleysis annars vegar og yfirgangssemi hins vegar. Komdu með dæmi úr daglega lífinu sem sýnir muninn á sjálfsstyrkingu, uppburðarleysi og yfirgangssemi – má líka vera tilbúið dæmi en þarf að vera búið til af þér.
-
a. Hver er þín kjarnahugmynd (sjá glærur)? Ljúktu við eftirfarandi setningu: ÉG ER…….
b. Hvaðan kemur þessi skoðun?
c. Hvenær myndaðist hún?
d. Hefur hún jákvæð eða neikvæð áhrif á þig?
e. Á þessi skoðun enn við í dag?
f. Þetta er þín skoðun en telur þú að þetta sé skoðun annarra og/eða sé staðreynd?
-
Hvernig er hægt að bæta sjálfsöryggi sitt?
-
Í greininni sjálfsskoðun er fjallað um þrjá þætti: forvitni, samþykki og hlýju - lýstu hvað felst í þessum þáttum í sjálfsskoðun og getur sjálfsskoðun leitt til verri líðan? færðu rök fyrir svarinu.
Gangi þér vel,
María.