Samskipti – Sjálfstraust

Verkefni 1

Lesefni: Lesið glærurnar um sjálfstraust. 

Lesið greinarnar sem fylgja: s.s. Hvað er sjálfsmynd, Hvað er sjálfsstyrking, hvernig er best að byggja upp gott sjálfsöryggi? Hvað er heilbrigt sjálfsmat? 

Svarið eftirfarandi spurningum:

  1. A)Hvað merkja orðin hér fyrir neðan? Skrifaðu þínar vangaveltur um orðin, getur líka leitað að efni um þau.

    B) Hvernig metur þú sjálfan þig í þessum orðum, s.s. hvernig sjálfstraust, sjálfsvirðing og svo frv. telur þú þig hafa

    1. Sjálfstraust

    2. Sjálfsvirðing

    3. Sjálfsálit

    4. Sjálfselska

    5. Sjálfsmynd

  2. Lestu glæruna um sjálfsmynd og 3 hluta hennar. Skrifaðu svo um þína sjálfsmynd út frá þessum 3 hlutum og hversu vel þeir passa saman. 

  3. Hvað ógnar sjálfstrausti fólks almennt og hvað finnst þér ógna þínu sjálfstrausti?

  4. a. Hvað einkennir fólk í samskiptum sem hefur annars vegar gott sjálfstraust og hins vegar lélegt sjálfstraust? b. hvað einkennir þitt sjálfstraust? (lýstu því t.d. með dæmum í samskiptum). 

  5. Það má segja að sjálfsstyrkur sé hinn gullni meðalvegur milli uppburðarleysis annars vegar og yfirgangssemi hins vegar. Komdu með dæmi úr daglega lífinu sem sýnir muninn á sjálfsstyrkingu, uppburðarleysi og yfirgangssemi – má líka vera tilbúið dæmi en þarf að vera búið til af þér.

  6. a. Hver er þín kjarnahugmynd (sjá glærur)? Ljúktu við eftirfarandi setningu: ÉG ER…….

    b. Hvaðan kemur þessi skoðun?

    c. Hvenær myndaðist hún?

    d. Hefur hún jákvæð eða neikvæð áhrif á þig?

    e. Á þessi skoðun enn við í dag?

    f. Þetta er þín skoðun en telur þú að þetta sé skoðun annarra og/eða sé staðreynd?

  7. Hvernig er hægt að bæta sjálfsöryggi sitt?

  8. Í greininni sjálfsskoðun er fjallað um þrjá þætti: forvitni, samþykki og hlýju - lýstu hvað felst í þessum þáttum í sjálfsskoðun og getur sjálfsskoðun leitt til verri líðan? færðu rök fyrir svarinu. 

Gangi þér vel,

María.

Síðast breytt: sunnudagur, 31. ágúst 2025, 11:35 AM